Eldri færslur fyrir » January, 2005 «

færsla skrifuð kl. 22:24 - 26. January, 2005 | Höfundur: einir

Já… miðvikudagarnir eru erfiðir skólalega séð… Stanslaust í skólanum frá 8 – 18 :o En þar kemur á móti að þrisvar sinnum í viku er ég búinn á hádegi ;) Það er algjör snilld og miðvikudagarnir eru kannski lítil fórn fyrir svona góða mánudaga, fimmtudaga og föstudaga :D En ég var allavega að fara í minn fyrsta fótbolta-íþrótta tíma í dag og ég hélt í alvörunni í smá stund að ég yrði ekki eldri! Jesús minn almáttugur, hvert í helvítinu fór þolið mitt?!? Er reyndar í fótbolta með gaurum sem eru held ég allir að æfa fótbolta og í geðveiku formi… en samt, eftir 20 mín var ég við það að fara að gráta… lagaðist eftir sem leið á tímann reyndar (kannski af því ég færði mig alltaf aftar og aftar:). Þetta verður að laga og ekki seinna en strax… hjálpar að ég er í 2 íþróttaáföngum, einum fótbolta og einum badminton… jeee :P

Svo annað sem ég var að velta fyrir mér… ég hef þann leiðinlega ókost sem ég hef verið að reyna að venja mig af (með bara ágætis árangri) að dæma menn/konur eftir útlitinu… Hef margoft rekið mig á hérna í “gamla daga” með þennan leiðinlega ávana og sumir af þeim sem ég var búinn að ákveða að væru bara leiðinlegir eða ég hefði engan áhuga á að kynnast betur eru bestu vinir mínir í dag. Svo hef ég alltaf átt erfitt með að kynnast nýju fólki svo það kannski spilar soldið inní þarna… held mig frekar útaf fyrir mig & mína vini :P En ég er samt ekki að segja að það sé ekki hægt að kynnast mér :D Annars veit ég ekkert af hverju ég fór að tala um þetta… ætli ég sé ekki bara einmanna lítill strákur í nýjum skóla ;) Sooooo many new faces around…
En annars ætla ég að fara að kalla þetta gott og skella eins og einni dvd mynd í tækið og poppa…
Chao folks…
Einir Jr.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 13:15 - 23. January, 2005 | Höfundur: einir

Mikið er nú gott að taka eina og eina helgi bara í rólegheit og næs… liggja í tölvunni eða yfir vídjói með nóg af nammi og bara hafa það gott. Allavega fór þessi helgi í svoleiðis þægilegheit hjá mér og Bergdísi, sem er einmitt nýstigin uppúr einhverri viðbjóðsflensu. En já, tókum 2 myndir í gær… Riddick og The Score, og ég segi bara thank god að við tókum gamla mynd með þessum Riddick viðbjóði… þvílíka hörmungin. Ekki nóg með að þetta sé geimmynd heldur er þetta WANNABE geimmynd… kláraði samt að horfa á þetta helvíti bíðandi eftir því að það kæmi nú eitthvað flott atriði, sem náttlega gerðist ekki. Svo tókum við The Score, gamla mynd með Robert DeNiro sem ég var aldrei búinn að sjá. Hún var algjör snilld og varð ég ekki fyrir vonbrigðum með hana…

Annars er bara allt gott að frétta… búinn að fá metið það sem ég tók í FÍV og kom þá í ljós að ég var í 2 áföngum á þessari önn sem ég þurfti ekki að taka :o Fór til áfangastjóra til að skipta þeim út og jájá… verð í 2 stærðfræðiáföngum á þessari önn og svo var bætt við mig sögu… :S Nú er bara að sýna hvað í manni býr.. :D Hefði nú aldrei tekið þennan auka stærðfræði áfanga nema fyrir það að ég leigi hérna hjá Elenu systur í Reykjavíkinni. Hún á eftir að hjálpa mér helling ef ég þekki hana rétt :P

Svo ætlaði ég nú að koma til Eyja næstu helgi en neinei… fékk kallinn ekki bara hringingu á föstudaginn. Gaurinn úr Bónusvideo hérna niðrí Mjódd þar sem ég var búinn að sækja um vinnu með skólanum að spurja hvort ég væri búinn að fá vinnu og bauð hann mér bara vinnu kallinn. Mæti á morgun til að læra á þetta allt saman… og vinn svo næstu helgi (sem er reyndar ekki alveg nógu gott því ég vinn aðra hverja helgi eins og Bergdís, en er settur á helgarnar á móti henni :o ):D en það verður fínt að fá smá aur með náminu… sama hvað það er sem maður þarf að vinna við (fyrir utan vændi… eða hvað?) ;) Svo ég verð bara að kíkja seinna til ykkar á Eyjuna fögru…. :/

En jæja… ég er að spá í að nota þennan fína sunnudag í að vinna mig áfram í Verklagsfræðinni og Upplýsinga- og samskiptatækninni. Svo ég hafi nú meiri tíma fyrir stærðfræðina :o
Best að koma sér í læristuð…
Chao… :P

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 18:31 - 18. January, 2005 | Höfundur: einir

Þá er þessi helgi búin og skólavikan tekin við á ný. Merkilegt hvað þetta er allt saman orðið fljótt að líða, meira að segja skólavikan :o En já það var bara fínt um helgina, rólegheit á föstudaginn þar sem manni var nú boðið á Árshátíð Nordica kvöldið eftir. Hékk í Fifa 2005 og fór svo að sofa. Daginn eftir var svolítið annað upp á könnunni en þá var stórleikur í hádeginu og dagurinn tekinn snemma. Jú, Liverpool vs. Man Utd og ekkert annað að gera en að fara með Bigga, Jónasi og Gísla Böðvari á Klúbbinn til að horfa á leikinn. Vegna hálku og viðbjóðslegrar færðar (auk þess sem við ætluðum á Players fyrst en þar var fullt) komum við þegar rúmar 20 mín voru liðnar af leiknum og Man Utd marki yfir, ekki nógu gott. Og þrátt fyrir endalausar tilraunir og að Man Utd hafi verið einum manni færri í seinni hálfleik tókst mínum mönnum ekki að jafna (enda voru allir sóknarmenn United manna teknir út af og varnarmenn settir inná :) og endaði leikurinn 0 – 1. Góður leikur samt sem áður og allt annað að sjá til minna manna…

Svo var haldið heim til Jónasar þar sem við horfðum á 2 leiki í viðbót, horfðum á Chelsea vinna Tottenham 2 – 0 og svo á Bolton vinna Arsenal 1 – 0… Svo það lítur nú allt út fyrir að Chelsea vinni þessa deild.

En svo var komið að því að hafa sig til og drattast niður á Nordica Hotel þar sem Bergdís beið eftir mér þar sem árshátíðin var að fara að byrja. Kom þangað og var þetta bara hin fínasta skemmtun. Edda Björgvins var kynnir og ég verð bara að segja að hún kom mér veeeeeerulega á óvart… ég hló og hló og hló og hló… algjör snilld. Aftur á móti var sonur hennar aðeins misheppnaðari en það er önnur saga. Alveg helvíti skemmtilegt kvöld og nóg af áfengi, sem ég náði nú samt að innbyrða ekki of mikið af… ;) Svo var komið að dansiballi og voru það hljómsveitin Írafár – Birgitta Haukdal + Hreimur í Hlandi og Sonum sem spiluðu… ágætis lög sem þeir tóku en ekki var nú mikið dansað, allavega ekki ég :P

Svo eftir þetta ákvað ég að kíkja niður í bæ þar sem Elena systir og Biggi voru búin að hringja í mig og segja mér að koma… sló til og hljóp niður í bæ frá Nordica… með smá stoppi á Devitos Pizza… naaaaaaaaamm… En þegar ég kom út af Devitos, hæstánægður með væna sneið í annarri og fanta í hinni… neinei, hryn ég ekki á rassinn og missi pizzuna. Og ég hélt að ég þyrfti að kaupa mér nýja… þar til ég sá að pizzan hélst á diskinum og rann niður bílastæðið Á honum…. hahaha, mikið varð ég ánægður.

Hélt svo áleiðis niður Laugaveginn og hitti ég fólkið þar og var djammað langt fram eftir nóttu með nokkrum undantekningum sem ég ætla nú ekki að fara að nefna hér ;) Var kominn heim milli 6 og 7 og engin spurning um það að næsta helgi verður tekin róóóólega… :D

Annars ætla ég að kalla þetta gott en ég fann eitthvað svona nördapróf á netinu og ákvað að taka það þar sem ég hef heyrt ófaum sinnum hvað ég er mikill nörd og ákvað að láta á það reyna… Kom í ljós að ég er nú ekki eins mikill nörd og flestir vilja láta uppi ;)

I am nerdier than 28% of all people. Are you nerdier? Click here to find out!

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 16:28 - 14. January, 2005 | Höfundur: einir

Helgin gengin í garð og ekkert nema gott um það að segja. Stuttur skóli hjá mér á föstudögum, búinn korter í 1… var reyndar búinn korter yfir 11 af því síðasta kennslustundin féll niður. Annars er bara fínt að vera í þessum skóla. Og náttlega bara snilld að vera kominn með áhuga fyrir þessu aftur… maður getur ekki leikið sér endalaust :o Talandi um það… þá er árshátíð Nordica Hotel á morgun og ætlar hún Bergdís að vera svo góð að bjóða mér með sér ;) Ég hugsa að ég verði nú örugglega bara rólegur, því ég var eiginlega búinn að lofa sjálfum mér því og peningalega séð VERÐ ég eiginlega að gera það… en maður sér til… Heyrði í Magna áðan og var hann að spá í að kíkja í bæinn um helgina og þá verður mar nú að hitta kallinn… langt síðan við settumst niður yfir einum köldum.

Svo er náttlega leikurinn á morgun (Liverpool vs. Man Utd) og mun Morientes þá spila sinn fyrsta leik fyrir Liverpool, en hann var keyptur í fyrradag frá Real Madrid fyrir 6.3 milljónir punda. Ég bind miklar vonir við kauða og efast ekki um að hann eigi eftir að leika stórt hlutverk í þessum leik ;) Ég tippaði nú á jafntefli á Haltu kjafti tippinu en gæti alveg trúað að hann myndi klára þetta bara fyrir okkur ;)

En já, nóg að gera um helgina og bara gaman að því. Svo var Sveinbjörninn minn að tala við mig áðan og segja mér frá því að þeir í hljómsveitinni More munu spila á Conero föstudaginn 28. jan næstkomandi og aldrei að vita nema maður skelli sér bara til Eyja þá helgi og hlusti á þá félaga… hver veit ;)
Annars hugsa ég að þetta sé komið gott… bið að heilsa og hafiði það gott um helgina
Einir Jr.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 00:02 - 11. January, 2005 | Höfundur: einir

Jæja þá var fyrsti formlegi skóladagurinn hjá mér í morgun. Byrjaði bara ljómandi vel á 2 fögum sem ég hugsa að verði bara skemmtileg. Verklagsfræði og upplýsinga- og samskiptafræði… tölvuáfangar sem eru símatsáfangar (ekkert lokapróf ;) ) og ekkert nema gott um það að segja. “Læra” að gera heimasíðu og svona flottheit :D Excel og Word og læti… hehehe…

En já… þetta var mjög skrítið en skemmtilegt, nýtt umhverfi… fullt af fólki sem mar þekkir akkúrat ekki NEITT og bara allt annað en FÍV :P Hitti reyndar á Eyrúnu og Berglindi Jóhanns eftir hádegi og spjallaði aðeins við þær… fínt að hafa svona kunnugleg andlit þarna inn á milli ;) Mér líst allavega bara vel á þennan skóla svona við fyrstu kynni og vona að þetta verði bara skemmtilegt :)
Lítið sem ekkert annað að frétta nema það að ég er að leita mér að vinnu með skólanum og ef þið vitið um eitthvað sem hægt er að gera með skóla þá endilega látið mig vita… ;) annars er ég bara farinn að sofa… skóóóóli á morgun ;)
Laaaaaaaters…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 18:08 - 08. January, 2005 | Höfundur: einir

Nú er allt komið á fullt hjá manni í sambandi við þennan blessaða skóla. Fór í gær með Bergdísi að kaupa skóladót… soldið skrítið ;) En já, mér líst bara vel á þetta… fór í töflubreytingar á fimmtudaginn og henti þýskunni út úr töflunni hjá mér. Vil ekki sjá þetta fag þar sem 3. tungumál er ekki nauðsynlegt á Upplýsinga- & tæknibraut… sem betur fer. Setti upplýsingatæknina inn í staðinn og lítur taflan bara vel út. 19 einingar og nú er bara að sýna hvað í manni býr… :o

Er núna kominn með mína gömlu góðu ferðatölvu aftur í hendurnar en hún var í pössun hjá Árna Óla í svolítinn tíma og svo hjá Anítu undir lok síðustu annar. Mig langar að þakka þessu yndislega fólki fyrir að stúúúúúúúúúútfylla greyið mitt af vírusum og allskonar ormum og viðbjóði. Ég háði hetjulega baráttu við þessi kvikindi í gær en gafst upp að lokum og mun væntanlega formata þessa litlu elsku á eftir. Hún verður nú að vera tilbúin fyrir skólann á mánudaginn ;)
Annars er lítið sem ekkert að frétta og ég held það verði bara tekið því rólega um helgina.
Nú er ég hættur að vera svona latur að blogga og lofa reglulegri færslum hér inn.
Minni enn og aftur á Haltu Kjafti spjallborðið og hvet sem flesta að skrá sig þar… algjör snilld.
Takk fyrir mig…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment