Eldri færslur fyrir » December, 2004 «

færsla skrifuð kl. 18:10 - 31. December, 2004 | Höfundur: einir

Þá er komið að því. Kominn tími til að kveðja árið 2004. 31. des genginn í garð og ég kominn á Eyjuna fögru… frábært að vera kominn heim til moms & pops í góða matinn og þægilegheitin. En þar sem jólahátíðarnar eru ekki nema einu sinni á ári ætla ég ekki að hafa þetta mikið lengra og bara óska öllum gleðilegs nýs árs og farsældar á komandi ári :D Soldið formlegt já… nú bíður maður bara eftir góða matnum og flugeldunum… spurning hvað mar gerir í kvöld, margt í boði en það verður allavega róóóólegra en gærkvöldið… jesús já.
Áramótakveðja,
Einir Jr.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 16:06 - 23. December, 2004 | Höfundur: einir

Jæja þá er fjölskyldan bara komin til London. Lentum í fyrradag á Stansted flugvelli og þar tóku Þórhallur og Gústi meðleigjandi hans á móti okkur. Svo erum við eiginlega bara búin að vera að versla eins og okkur sé borgað fyrir það… enda útsölur og læti hérna. Þótt að peningastaðan sé nú ekki mikil hér kemur Siggi ríki bró og hjálpar manni ;) Svo fórum við út að borða og læti í gær þar sem pabbi gamli varð fimmtugur… (vá :o ) Fórum á T.G.I Fridays og það var algjör snilld. Góður matur og snilldarþjónusta. Þótt það hefði verið GEÐVEIKI að gera. En já… erum að fara á vaxmyndasafnið núna svo ég verð að hafa þetta stutt.. hendi kannski meiru inn í kvöld. Annars á morgun… ;)

Bið að heilsa ykkur öllum heim og hafiði það nú sem best… og ef ég verð fullur og vitlaus þangað til ég kem heim, verð ég að óska ykkur gleðilegra jóla… ;)
Býst samt við að henda einhverju hér inn á morgun… En já… vaxmyndasafnið bíður.
Bæjó…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 18:01 - 19. December, 2004 | Höfundur: einir

Jájá… Ég er greinilega kominn aftur í sama pakkann… letin að drepa mann. Neinei, bara búið að vera mikið að gera upp á síðkastið… plana og svona ;) Búinn að vera að vinna í Góunni núna undanfarnar 2 vikur og ekkert nema gott um það að segja. Gaman að sjá hvernig nammið er búið til og reyndar ætlaði ég ekki að trúa því þegar ég var settur við færiband ásamt hinu fólkinu og við áttum að SETJA HVERN MOLA FYRIR SIG Í KONFEKTKASSA… jájá… það fékk hver og einn sinn mola og sá til þess að sá moli færi á réttan stað í konfektkassanum… hefði nú haldið að vél myndi sjá um þetta en neinei… það er fólk sem setur konfektið í kassana :D Þannig að þegar þið borðið konfekt um jólin þá kannski hugsiði til mín… eða ef þið fáið ykkur hraunbita… ég sá um að það væri alltaf nóg rice crispies í vélinni sem stráði því yfir bitana… hahahaha ;)

En já það var enginn annar er Norðmaðurinn sjálfur sem sá sér fært að kíkja í bæinn í gær þar sem hann var nú á leiðinni heim til Eyja eftir strangan vetur í Háskólanum á Akureyri. Við tókum eitt nett djamm hérna í borg óttans áður en hann fór til Eyja og var það bara fíííííínasta kvöld ;) Hittum hina og þessa Eyjamenn og ekki Eyjamenn og röltum á milli staða eins og vaninn er. Djöfull var mikið í bænum í gær. Það voru raðir við ALLA fucking staðina… meira að segja Kaffi Austurstræti… hahahaha.

Þetta var fjör og nú er Hlynsinn farinn til Eyja en í skiptum fyrir hann kom Yerni fuck til rvk þar sem hann er nú á leiðinni til FLÓRÍDA yfir jólin, helvítið á honum… og ekki nóg með það heldur eftir það tekur við skemmtiferðasigling um Karabíska hafið! “#$(/”#$&(/”#$&… smá öfund :( Nóg að gera hjá öllum og bara gaman að því. Get ekki beðið eftir áramótunum sem maður mun eyða í EYJUM (hvar annarsstaðar? :) Þetta verður án efa geggjað… farinn að kitla í puttana…
Ætla að kalla þetta gott og skella mér í pool með Árnanum…
Chao…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 21:00 - 10. December, 2004 | Höfundur: einir

Jæja þá er mar búinn að vera að vinna og vinna í þessu blessaða myndaalbúmi, finna gamlar myndir og henda þeim inn. Hef einnig verið að taka til í myndaalbúmunum sem voru fyrir þar sem myndir úr öðrum albúmum voru farnar að þvælast inn í hin og þessi albúm… weird. Nú er líka hægt að commenta á myndirnar og svona næsheit… En já þetta er allt að smella hjá mér og næst á dagskrá er bara að henda saman lista yfir fólkið sem að gerir mig að því sem ég er… allt þetta frábæra fólk niðrá Hlemm. Neeee… vinirnir of course. Hugsa að það fari að detta hérna á næstunni.

Annars er lítið sem ekkert að frétta eins og vanalega.. Styttist allsvakalega í jólin og ekki laust við að manni sé farið að hlakka svolítið til ;) I wonder why… :o En ég vil benda á það að yfirsleggjukastarinn Olga Möller nokkur er komin með þessa líka svakalegu bloggsíðu og skiptir greinilega oftar um blogg en nærbuxur þar sem hún á nú 2 bloggsíður á jafnmörgum dögum… :S Á síðunni hennar er könnun um hvaða bloggari myndi kasta sleggjunni lengst og ég verð að segja að ég er nokkuð hissa á gangi mála í þessari könnun þar sem ég er kominn með nokkur atkvæði… ég gruna nú samt Olgu um að vera að láta aðra fá nokkur vote svona til að stinga þetta ekki alfarið af. :D

Svo fæ ég vonandi að vita hvort ég komist inn í FB eða Iðnskólann í næstu viku og krossleggur mar bara fingurnar og vonar á meðan… þar sem ég sótti nú um svolítið seint :o bíður og vonar ;)
En best að fikta aðeins meira í þessari blessuðu síðu sinni ;)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 02:25 - 08. December, 2004 | Höfundur: einir

Jæja þá er ég búinn að koma myndunum í gang svona að mestu leiti… þarf aðeins að fínpússa þetta myndagallerý en þetta virkar eins og er svo ég skellti þessu bara hingað inn. Njótið vel ;)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 22:40 - 06. December, 2004 | Höfundur: einir

Ég er búinn að vera að spá í augnalitnum mínum upp á síðkastið… Þannig var það nú að um daginn fór Bergdís að spá í hvernig augun í mér væru á litinn og ég sagði bara… “Þau eru blá…” því ég hef alltaf haldið að þau séu blá og ég get svo svarið það að þau eru eða allavega voru blá! Hún fer eitthvað að skoða í mér augun betur og segir mér að ég sé með græn augu… Ég hélt nú ekki og fór í spegil til að tékk á þessu og ég einhvernveginn var ekki alveg að fatta hvernig augun í mér voru á litinn… en þau voru ekki eins blá og mig minnti. Það var kominn einhver annar litur þarna :o Svo spurði Bergdís mömmu sína og hún var sammála um að augun í mér væru nú svolítið út í grænt frekar en blátt.

Er það virkilegt að augu geti breytt um lit með árunum eða vorum ég og mínir bara svona skelfilega litblindir á sínum tíma… EÐA er Reykjavíkin að hafa þessi áhrif á mig? Eða var einhver sem skipti um augu í mér þegar ég var numinn brott af geimverum hérna fyrir stuttu… Nei ok ekki fara út í rugl… en mér finnst þetta mjög skrítið… :/

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 18:48 - 06. December, 2004 | Höfundur: einir

Þessi fyrirsögn er eitthvað sem á alveg við mig um þessar mundir. Þannig er það nú að nú er maður að hætta á Nordica Hotel þar sem 3 mánaða reynslutíma er lokið og á neminn þá að vera búinn að gera upp við sig hvort þetta sé eitthvað sem hann vill gera til frambúðar eða hvort þetta eigi ekki við hann. Í mínu tilfelli á þetta ekki alveg við mig… mér finnst þetta skemmtilegt og allt það… en þetta er ekki eitthvað sem ég sé mig í restina af lífinu. Svo ég ákvað að hætta og er búinn að sækja um bæði í Iðnskóla Reykjavíkur og Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Og til að vinna mér inn einhvern smá pening fyrir jólin reddaði Þórir mér vinnu í Góu fram að jólum. Takk æðislega fyrir það ;)

En já, ég sótti um á Tölvubraut í Iðnskólanum og á Upplýsinga- & Tæknibraut í FB og vona bara að ég fái inn. Á báðum stöðum er ég svo til búinn með grunninn á þessum brautum og á því bara eftir þetta sérhæfða tölvunám, forritun, hugbúnaðarfræði og þess háttar. Já það er búið að vera nóg að gera að sækja um í skólum, velja nám sem hentar og hrinda þessu ferli í framkvæmd…

En svo kemur maður ekki til Eyja aftur fyrr en um áramótin og þá verður sko tekið á því. Eins og það er nú alltaf gaman í Eyjum yfir þessi blessuðu áramót, djamm hér og þar… partý allsstaðar :D Aníta sagði mér að það væri Áramótaball & Nýársball svo það verður nóg að gera hjá manni… En ætla ekki að hafa þetta lengra.
Og já… myndirnar fara að detta.
Laters…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment