færsla skrifuð kl.
12:04 - 19. November, 2004 | Höfundur: einir
Hvað er málið með þennan blessaða kulda. Annaðhvort kann ég bara ekki að klæða mig eftir veðri eða þá að ég er orðin kuldaskræfa… Alveg skjálfandi á beinunum hérna eftir að hafa hoppað aðeins út í bíl og aftur inn… brrrrrr. En nóg um það. Fór með Arndísi, Gaua, Aroni, Jessý & Gísla Stefáns á Conero í gær þar sem var setið og spjallað (og teflt smá) yfir einum köldum. Aðeins að hita upp fyrir helgina
Svo var bara farið heim… eða heim, Dísa skvísa bað mig að gista heima hjá Árna þar sem hann var nú úti á sjó og henni leiddist svo að sofa alein í stóra húsinu
Hvað gerir maður ekki fyrir hana…
En jæja… kominn tími til að sækja aðal dísina upp á flugvöll þar sem hún fer nú að lenda.
Eyja-Einir out…
Flokkað undir: Almennt










Síðustu komment