Já nú er helgin liðin með tilheyrandi djammi og látum. Fór í afmæli til Guðjóns á föstudaginn en kallinn varð 22 ára þann 6. nóv. Til hamingju með það enn og aftur
En já kvöldið byrjaði með kvöldmat a la Guðjón þar sem hann eldaði kjúlla og humar ofan í okkur… fínasti matur. Svo var byrjað að sötra og skellt sér í bæinn stuttu seinna þar sem maður fékk sér 1 – 2 kalda og fór svo heim… hahaha.. ég vildi að ég hefði gert það… neinei… lítill Einir fékk sér þónokkuð meira en 1 – 2 og fór ekki heim fyrr en seint og síðar meir. Varð aaaaaðeins of drukkinn enda var heilsan á laugardeginum ekki uppá sitt besta… Það stoppaði mig nú samt ekki í að taka á því aftur um kvöldið. Hitti Gísla Stefáns og við skelltum okkur í pool og svo niður í bæ. Maður var aðeins rólegri sem betur fer og kominn heim um 5 leitið…
En já… gengin í garð ný vinnuvika og lítið planað að gera í þessari viku. Jú kaupa eitt stykki afmælisgjöf þar sem Bergdís verður nú 19 ára á miðvikudaginn
Spurning hvað maður á að gefa henni. Það lemur í kjós
Svo fer að líða að Eyjaferðinni mögnuðu en ég hef planað að skella mér í víking til Eyja 19. nóv þar sem til stóð að fara á Sálarball sem átti að vera í Höllinni 20. nóv en búið að færa til 27. nóv… það verður bara að hafa það. Alltaf hægt að finna sér eitthvað að gera í Eyjum og aldrei að vita nema maður nái að plata eins og einn eða tvo aðila í smá bjórsötur…
Annars er eiginlega ekkert að frétta og lítið á döfinni hjá mér… nema þá helst að hlakka til Eyjaferðarinnar
en ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra og fara og njóta þynnkunnar yfir Shawshank Redemption eða Shrek 2… get ekki alveg ákveðið mig ![]()
laters…










Síðustu komment