Eldri færslur fyrir » November, 2004 «

færsla skrifuð kl. 04:41 - 29. November, 2004 | Höfundur: einir

Já… ég veit að mörg ykkar voru farin að örvænta og kannski sum ykkar farin að íhuga að hringja á lögguna og tilkynna mig týndan. Þetta er allt í lagi. Ég er enn á lífi… ;) Þannig er það nú bara búið að vera að ég fékk einhvern flensuskít snemma í síðustu viku sem tók sig svo skemmtilega upp aftur yfir helgina og er ég bara búinn að liggja andvaka í svitabaði og ógeði hér heima… En þetta er allt að lagast. Smá hiti í manni ennþá og hálsbólga, en bein- og hausverkurinn farinn…

Annars er já bara eins og svo oft áður lítið að frétta af mér… tók mig reyndar til og breytti aðeins til á síðunni… ekkert merkilegt en henti inn gestabók (sem þið megið alveg vera góð og kvitta í… :) og gerði tilbúið fyrir kunnuglega liði hér á síðunni en það er myndasafnið og linkurinn fólkið sem sum ykkar ættuð að kannast við síðan á gömlu síðunni (ath þetta er ekki tilbúið) ;) Annars ætla ég að kalla þetta gott og koma mér í háttinn… gjörsamlega búinn að snúa sólarhringnum í allavega 2 hringi :D
Góða nótt!

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 22:51 - 22. November, 2004 | Höfundur: einir

Jæja þá er maður kominn aftur í borg óttans eftir þessa líka snilldar Eyjaferðina. Fínasta ‘afslöppun’ sem maður fékk þarna ;) En já, það þurfti ekki að spurja að því… ég ætlaði að vera voðalega bjartsýnn og djamma bara annaðhvort á föstudegi eða laugardegi… Krakkarnir hlógu nú bara að mér, enda féll sú yfirlýsing hratt og örugglega á laugardagskvöldinu. Skemmti mér samt sem áður alveg frábærlega vel bæði kvöldin… þó sérstaklega laugardagskvöldið, þar sem djammið ætlaði bara ekki að taka enda… Byrjuðum hjá Aroni.. fórum þaðan til Yerni fucks, þaðan á Conero og svo enduðum við á Lundanum þar sem DJ Ófi tryllti lýðinn.

Langar að þakka öllum sem ég hitti fyrir frábæra helgi og fjölskyldunni minni fyrir að vera frábær ;) Það var yndislegt að koma svona heim og alveg það sem mann vantaði eftir að þetta skammdegi hér í borginni skall á. Hótel Mamma sá vel um mig og Bergdísi á meðan við vorum þarna og passaði að maður hefði alltaf nóg af öllu ;) Veit ekki hvað ég gerði án mömmu minnar… (og pabba :)

En já, maður er kominn aftur í borgina og farinn að vinna aftur. Soldið að gera í dag og verður aftur á morgun… Svo frí miðvikudag og fimmtudag sem maður notar í eitthvað mis viturlegt… :P Langar að kíkja í sund (pottana) og já ég verð að koma mér upp svona To Do lista á heimasíðuna þar sem ég skrifa inn það sem ég þyrfti eiginlega að fara að gera við sjálfan mig… Er alltaf á leiðinni til læknis t.d. að láta kíkja á axlirnar á mér… eins að reyna að drullast til að byrja í badminton… hætta að borða nammi nema á laugardögum… borða hollari mat (vá erfitt í minni vinnu) og margt margt fleira sem ég myndi kannski koma í verk ef ég hefði þetta fyrir framan nefið á mér allan daginn… :D
En já… ætla ekki að hafa þetta lengra.. en minni enn og aftur á Haltu Kjafti!… the place to be ;)
laters…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 12:04 - 19. November, 2004 | Höfundur: einir

Hvað er málið með þennan blessaða kulda. Annaðhvort kann ég bara ekki að klæða mig eftir veðri eða þá að ég er orðin kuldaskræfa… Alveg skjálfandi á beinunum hérna eftir að hafa hoppað aðeins út í bíl og aftur inn… brrrrrr. En nóg um það. Fór með Arndísi, Gaua, Aroni, Jessý & Gísla Stefáns á Conero í gær þar sem var setið og spjallað (og teflt smá) yfir einum köldum. Aðeins að hita upp fyrir helgina ;) Svo var bara farið heim… eða heim, Dísa skvísa bað mig að gista heima hjá Árna þar sem hann var nú úti á sjó og henni leiddist svo að sofa alein í stóra húsinu ;) Hvað gerir maður ekki fyrir hana…

En jæja… kominn tími til að sækja aðal dísina upp á flugvöll þar sem hún fer nú að lenda.
Eyja-Einir out…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 01:04 - 18. November, 2004 | Höfundur: einir

Þá er maður kominn í Eyjarnar góðu. Skellti mér með fyrri ferð jólfsins í dag og kom fólkinu aðeins á óvart (var búinn að segja þeim að ég kæmi á föstudaginn ;) ) Mamma yfir sig ánægð að fá litla strákinn sinn í heimsókn… knúsaði mann í bak og fyrir… og pabbi auðvitað ánægður líka. Hélt maður myndi ekki sakna fjölskyldunnar svona mikið þarna í borg óttans en vá… það er sko gott að vera kominn heim.

Það var sko í nógu að snúast hjá mér þegar ég kom til Eyja. Heilsa upp á allt liðið… allt of langt síðan maður sá suma… stutt síðan aðrir voru í bænum. Frábært að hitta fólkið og hlakka til að djamma með þeim sem það geta um helgina. Arndís er að fara að vinna mjög líklega :( Yerni sagðist vera á leiðinni uppá land að klára að leggja rafmagn í íbúð systur sinnar, Svenni verður allavega að vinna á föstudaginn en spurning að ná honum á eitthvað skrall á lau? Bixie verður að vinna um helgina… en svo held ég að það ætti ekki að vera neitt mál að draga restina af liðinu í “sötur” og spjall ;)

Svo kemur Bergdís á föstudaginn og ætla ég þá að sýna henni þessa fallegu Eyju í vetrargallanum þar sem þessi blessaði snjór á að vera hérna allavega fram yfir helgi. Ætla að taka svona eina ‘vestmannaeyska helgi’… chill, heitir pottar, hvítlauksbrauð og svo hörkudjamm langt fram eftir nóttu… en nóg um það… Það er svo gott að vera kominn HEIM… ætla að fara inní sjoppu og ná mér í popp, kók & spólu… HOME SWEET HOME…

Þangað til næst… bæjó
Eyja-Einir

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 20:29 - 15. November, 2004 | Höfundur: einir

Djöfull er maður orðinn slappur í þessu strax. Farnir að líða alltaf 4 – 5 dagar á milli blogga… skömm að þessu. En já það er nú lítið meira að frétta af mér en síðast… var bara í vinnu um helgina og vinna í dag og á morgun þar sem ég er að leysa Helgu af niðrá Nordica. Hún vinnur svo fyrir mig miðvikudag og fimmtudag þannig að ég ætla bara að skella mér til Eyja á miðvikudaginn… hljómar það ekki bara ágætlega ;)

Fæ þá 5 daga frí, eða alveg fram á sunnudag, og ætla að eyða því fríi öllu í Eyjum… ahhhh þetta verður sweet! Bergdís kemur svo á föstudeginum (jafnvel fimmtudeginum) til Eyja. Þess má til gamans geta að hún hefur aldrei komið til Eyja… þannig að mar verður að taka smá tour um Eyjuna fyrir hana :D Sýna henni Herjólfsdalinn og sprönguna og svona… hahaha… segi svona. En ég trúi ekki öðru en að þetta verði helvíti fín ferð. Allavega farinn að hlakka endalaust til. Og Guðjón minn ég þarf ekkert að minnast á það að þú verðir að standa þig þegar ég kem… ég veit það alveg 100% að þú og Aron klikkið ekki ;)

Þá er bara að klára síðasta vinnudaginn og skella sér svo í Eyjaferð… ætla að taka því rólega í kvöld og taka spólu bara… kúra yfir einhverri snilldarmyndinni. Já! Eitt annað… ég er búinn að LEITA OG LEITA að The Pest út um ALLT hérna í Reykjavík og ég er ekki að finna hana… ég sem hélt að ég myndi finna allt hér. Á öllum hel#$/(”# leigunum hérna er sagt… “Nei, hún er týnd” eða “Nei, hún er ónýt”
Grrrrrrr…..
Allavega.. farinn að finna spólu ;)
einir out

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 18:56 - 11. November, 2004 | Höfundur: einir

Hún átt ammælí gær… hún átt ammælí gær… hún átt ammælún Bergdís… hún átt ammælí gær…! Til hamingju með afmælið sæta og takk fyrir matinn og kökurnar og allt í gær ;) Algjör snilld :* En já… Árni nokkur Óli skellti sér í bæinn í gær og hitti maður hann þar sem hann mætti heim til Steinunnar og Guðjóns, en við vorum að spila Mr & Mrs spilið þar… helvíti skemmtilegt spil og það má kannski geta þess að við (Ég og Bergdís) tókum okkur til og unnum Guðjón og Steinunni! Nanananana… ;) Skelltum okkur svo á poolstofuna þar sem við fengum okkur 1 – 2 öl (og Árni 3 staup) og spiluðum smá pool…

Svo vorum ég, Árni og Guðjón komnir í þann pakkann að nenna ekkert að fara að hætta… Guðjón reddaði okkur áfengi í Ölveri og við héldum heim til Guðjóns og Steinunnar þar sem allir staðir voru lokaðir… enda miðvikudagskvöld :o Enduðum þar í fínasta gítarpartýi a ‘la yerni og svo var farið heim að lúlla um 5 eða 6.


Svo er það bara vinna um helgina og enn styttist í blessuðu EYJAFERÐINA… ég er kominn með fiðring í magann bara við að hugsa um þetta :D Gulla og Svenni voru að segja mér að þau yrðu ekki á eyjunni þessa helgi þar sem þau væru að fara í bæinn að versla julegaver… þess vegna verð ég að stóla á að þú, þú, þú, þú og þú munið djamma af ykkur rassinn þarnæstu helgi með mér ;) Eruði menn eða mýs?

Allavega… Einir out :P

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 21:15 - 07. November, 2004 | Höfundur: einir

Já nú er helgin liðin með tilheyrandi djammi og látum. Fór í afmæli til Guðjóns á föstudaginn en kallinn varð 22 ára þann 6. nóv. Til hamingju með það enn og aftur ;) En já kvöldið byrjaði með kvöldmat a la Guðjón þar sem hann eldaði kjúlla og humar ofan í okkur… fínasti matur. Svo var byrjað að sötra og skellt sér í bæinn stuttu seinna þar sem maður fékk sér 1 – 2 kalda og fór svo heim… hahaha.. ég vildi að ég hefði gert það… neinei… lítill Einir fékk sér þónokkuð meira en 1 – 2 og fór ekki heim fyrr en seint og síðar meir. Varð aaaaaðeins of drukkinn enda var heilsan á laugardeginum ekki uppá sitt besta… Það stoppaði mig nú samt ekki í að taka á því aftur um kvöldið. Hitti Gísla Stefáns og við skelltum okkur í pool og svo niður í bæ. Maður var aðeins rólegri sem betur fer og kominn heim um 5 leitið…

En já… gengin í garð ný vinnuvika og lítið planað að gera í þessari viku. Jú kaupa eitt stykki afmælisgjöf þar sem Bergdís verður nú 19 ára á miðvikudaginn ;) Spurning hvað maður á að gefa henni. Það lemur í kjós :P Svo fer að líða að Eyjaferðinni mögnuðu en ég hef planað að skella mér í víking til Eyja 19. nóv þar sem til stóð að fara á Sálarball sem átti að vera í Höllinni 20. nóv en búið að færa til 27. nóv… það verður bara að hafa það. Alltaf hægt að finna sér eitthvað að gera í Eyjum og aldrei að vita nema maður nái að plata eins og einn eða tvo aðila í smá bjórsötur… ;)

Annars er eiginlega ekkert að frétta og lítið á döfinni hjá mér… nema þá helst að hlakka til Eyjaferðarinnar ;) en ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra og fara og njóta þynnkunnar yfir Shawshank Redemption eða Shrek 2… get ekki alveg ákveðið mig :D
laters…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 15:16 - 05. November, 2004 | Höfundur: einir

Jæja… þá lét maður loksins verða að því að skella sér í klippingu, ekki veitti af segja sumir… hinir eru hættir að tala við mig… :o Nei ég segi svona ;) Já maður var kominn með soldinn lubba og ekki laust við að vera kominn í líkingu við Cousin It í Adams fjölskyldunni. Skellti mér hérna niður í Mjódd á Hárgreiðslustofuna Möggurnar. Þeim leist greinilega ekkert á mig þegar ég kom þarna inn því ég var sendur beint í hárþvott og sótthreinsun liggur við :D En já ætla nú ekki að tala mikið meira um þetta nema um það hvað er viðbjóðslega dýrt að fara í klippingu í Reykjavík… 3000 krónur fyrir að stytta hár sem tók 30 mín í mesta lagi, fínasta tímakaup það. Svo gefa þessar konur upp 50.000 kall í mesta lagi í mánaðarlaun… my ass

En já þá er komin fríhelgi og með því tilheyrandi bjórsötur og vesen. Guðjón heldur eitthvað smá teiti í kvöld í tilefni þess að hann verður 22 vetra á morgun kallinn, svo maður fær sér kannski eins og 1 – 12 bjóra í tilefni af því. Spurning með laugardaginn en Gísli & Jessý eru nú í bænum svo mar verðu nú kannski í smá contacti við þau. Skellti mér á Café Viktor með Gísla og Bergdísi í gærkvöldi þar sem 2 bjórar runnu ljúflega niður… aðeins að hita upp fyrir helgina ;)

Annars langar mig að benda ykkur á ansi skemmtilegt spjallborð sem ber hið skemmtilega nafn Haltu Kjafti og er í umsjá Andra nokkurs Hugo. Skemmtilegar umræður þarna svo um að gera að skrá sig og benda fleirum á þetta til að skapa smá stemmningu ;)
En já það er verið að draga mig á skauta svo ég er out…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 14:24 - 01. November, 2004 | Höfundur: einir

Jájá… maður er víst bara ekkert á leiðinni ti Eyja… pabbi “gleymdi” að láta mig vita að Salóme frænka hefði bara tekið sig til og hent öllum spólunum inn í tölvuna og mín væri ekkert þörf… svo ég sit bara hér heima í Reykjavíkinni að gera það sem ég geri best… hanga í tölvunni ;) En jæja… maður verður þá bara að taka því og kannski skella sér í klippingu hér í bænum (hvað er ég búinn að vera að tala um að fara í klippingu lengi…). Ætlaði að fara í klippingu í Eyjum í dag en fyrst mar er ekkert að fara verður mar bara að finna sér einhverja stofu hér… Elena systir benti á zoo.is svo það er spurning um að fara bara þangað… maður spyr sig… í sífellu. Hvað finnst þér? ;)

Læt einn lítinn brandara sem Yerni sagði mér fylgja… algjör snilld

Hjón stóðu við górillubúr í dýragarði og kallinn segir við konuna: “Sýndu górillunni á þér brjóstin” og konan gerir það… górillan æsist soldið og þá segir kallinn: “Sýndu górillunni nú á þér pjásuna…” hún gerir það og górillan verður alveg óð… Þá tekur kallinn konuna og hendir henni inn í búrið og segir: “Reyndu að segja honum að þú sért með HAUSVERK!”

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment