Eldri færslur fyrir » October, 2004 «

færsla skrifuð kl. 23:26 - 30. October, 2004 | Höfundur: einir

Jæja… nú er vinnuhelgi hjá manni svo ekki verður mikið gert þessa helgina. Lítið að gera reyndar í vinnunni svo mar er búinn snemma… en mar bara nennir ekki að fara neitt eða gera neitt. Hangir heima í tölvunni og glamrar kannski aðeins á gítarinn. Svo eru það bara Eyjar á mánudaginn… henda inn þessum spólum í tölvuna uppí bónusvideo fyrir pabba. Verður örugglega ekkert svakalega spennandi Eyjaferð en mar reynir nú samt að hitta fólkið ;)

Svo er Dísin mín bara farin til Eyja :( Nú er mar bara aaaaaleinn í borginni…. nei ég segi svona… en maður á nú samt eftir að sakna hennar. Vonandi bara að hún finni vinnu í Eyjum og plummi sig bara vel þarna ;) Eins og síðast þegar hún bjó þarna… hahahha… það var meiri snilldin ;) Annars kemur maður næst til Eyja 19. nóvember og var það eiginlega ætlunin að fara á Sálarballið sem átti að vera 20. nóv en nú er víst búið að færa það á helgina eftir svo mar verður bara að búa sér til djamm þarna helgina 19 – 21 ;) Og ég treysti á það að þessir blessuðu vinir manns þarna í Eyjum geti nú séð sér fært að fá sér eins og kannski einn til tólf kalda með manni fyrst mar er nú að koma :P

Voðalega lítið annað að frétta… Jú Guðjón Chef á afmæli næstu helgi sem er einmitt fríhelgi hjá okkur svo það er spurning hvort hann taki sig ekki bara til og haldi eitthvað smá teiti í tilefni af því… :D mar mætir með gítarinn og kennir honum kannski nokkur grip eða svo (hann er einmitt að byrja að læra á gítar :) Bergdís og Steinunn eiga reyndar líka afmæli í nóvember svo þetta er afmælismánuðurinn mikli hjá þeim… ég bíð bara eftir maí-inum mínum… og þó… mig langar ekkert að verða mikið eldri :/
En já… kokkaneminn kveður ;)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 13:34 - 28. October, 2004 | Höfundur: einir

Rakst á þessa skemmtilegu síðu þar sem einhver hafði gefið sér tíma og tekið saman þá fjölmörgu Eyjamenn sem eru að aðhafast hér í bloggheimum og hefur hjálpað mér heilmikið að bæta á minn lista yfir bloggara. Algjör snilld… en veit einhver hver stendur fyrir þessu? Síðan er hér.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 02:24 - 28. October, 2004 | Höfundur: einir

Fór og tilkynnti símann minn stolinn í dag… :( eitthvað and$(#/”) fífl hefur stolið honum í innflutningspartýinu á föstudaginn. Alveg er ég ekki að ná svona liði… “förum í partý og rænum einhverju þaðan…” Reyndar skil ég ekki til hvers fólk er að stela símum í dag… það er hægt að rekja þetta allt saman. Ekkert hægt að nota símann minn nema innan kerfis símans og um leið og einhver fer að gera það verður lögreglan látin vita… vonandi finnst þetta fífl. Annars verð ég að borga næstu 11 mánuði af einhverju sem ég á ekki einu sinni.

Annars er nú mest lítið að frétta bara… frí í dag og á morgun í vinnunni og svo bara helgin. Lítið að gera í vinnunni eins og er… Pabbi er búinn að panta mig til Eyja á mánudaginn þar sem tölvuruslið uppí Bónusvideo hrundi og ég á að mæta galvaskur í að skrá 2500 spólur inn í nýju vélina sem hann fær… Jibbý ;) Það verðu fjör… svo fer ég aftur heim á þriðjudeginum og í vinnu á mið… hvað gerir maður ekki fyrir fjölskylduna :)
Svo er stefnan sett aftur á Eyjarnar 19. nóv… skella sér á Sálarball og hitta fólkið ;) Það verður örugglega massa stuð… býst ekki við öðru… Sá það alveg þegar krakkarnir komu hér um helgina hvað mar saknar þess að djamma með þeim ;) Og svo er Dísa Skvísa kannski bara á leiðinni að fara að flytja til Árna Óla. Það verður nú eitthvað djammið í Eyjum þá :D Ekki einsog síðast þegar ég kom og ég þurfti að gera dauðaleit að liði til að djamma… endaði með að Steebman kom og bjargaði manni. Manni er allavega farið að hlakka til og vona bara að Arndís verði þarna þegar ég kem ;)

Annars ætla ég nú ekki að hafa þetta lengra… laters

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 17:54 - 23. October, 2004 | Höfundur: einir

Já nú er sko búið að vera gaman… Airwaves í fullum gangi og fullt af liði úr Eyjum í bænum. Skellti mér eftir vinnu á fimmtudaginn með Árna Óla og Bixie á Nasa þar sem var hörkudagskrá. Þar spiluðu Botnleðja, Úlpa, Ensími og Sahara Hotnights fyrir troðfullu húsi og munaði minnstu að maður hefði ekki komist inn. Sú varð raunin með Bigga Magg þar sem hann kom of seint og fékk ekki að fara inn.. Helvíti óheppinn því þetta voru alveg hreint rooooosalegir tónleikar. Missti reyndar af Botnleðju en strákarnir sögðu að þeir hefðu verið helvíti þéttir. Sá Úlpu sem voru nokkuð góðir og svo steig Ensími á svið og spiluðu fullt af nýju efni með gömlum slögurum á borð við Arpeggiator og Brighter inn á milli… geðveikir. Svo var komið að því sem ég held að flestir hafi verið að bíða eftir þarna… RokkGELLUNUM í Sahara Hotnights…

Ég hef verið að fylgjast með þessari grúbbu síðan snemma á þessu ári, eða þegar ég og Árni ákváðum að skella okkur á Hróarskeldu í sumar. Þær voru einmitt að spila þar og ég ákvað að ná í nokkur lög með þeim og varð strax mjög hrifinn af því sem þær eru að gera og þær voru ekkert að valda mér vonbrigðum þarna á Nasa. Svo svalar og geggjaðar á sviði að það er ekki fyndið. Við vorum alveg að missa okkur… ásamt öllum sem voru þarna. Komu mér virkilega á óvart með sviðsframkomu og trommarinn var svo svalur að við vorum bara eins og smástelpur þarna… grúppíur dauðans :D

En svo var voðalega lítið í gær sem freistaði manns að sjá á airwaves og plús það voru Elena og Þórir að halda innflutningspartý hér svo mar var bara heima að sötra bjór yfir idolinu og kannski eitthvað fram yfir það ;) Gítarinn var tekinn upp og var stöðug traffík inní herbergið mitt þar sem ég og Árni héldum uppi stuðinu… ekki það að það hafi margir komist fyrir hér í einu en þetta bjargaðist alveg. Svo eftir að nokkrir kaldir höfðu runnið mjúklega niður inní herbergi var kominn tími til að færa stemmninguna inn í stofu þar sem djammþyrstir vinir og kunningjar Elenu & Þóris biðu… Svo þegar líða tók á nóttina fór fólkið að týnast niður í bæ en ég ákvað að vera bara eftir heima… Vaknaði eldhress að verða 12 í morgun og bara sáttur. Spurning um að fá sér smá mjöður í kvöld… einhverjir bjórar eftir og svo er ein rauðvín inní skáp ;) Held samt að símanum mínum hafi verið stolið í gær svo ég er ekki aaaaalveg sáttur. Vonast samt til þess að hann liggi hérna undir einhverjum bjórdósunum :P Vonandi :o

En já.. ætla að fara að koma mér í sturtu og heyra í liðinu.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 16:19 - 18. October, 2004 | Höfundur: einir

Nú fara veðurguðirnir hamförum um allt Ísland og er maður að sjá mikið um þetta skrifað á fréttavefjum landsins. Til dæmis sá ég þessa frétt á mbl.is og eyjafrettir.is greindu frá því í frétt hjá sér að þakið sem fauk af IMEX húsinu hafi lent ofan á glænýjum bíl framkvæmdastjóra Ísfélagsins… Ægis Páls. En enginn hefur slasast sem betur fer.

Annars var nú bara brjáluð vinna hjá mér um helgina og er ég nú kominn inní letivikuna… vinna á miðvikudag og fimmtudag og svo helgarfrí. Jeij ;)

Elena systir og Þórir hafa ákveðið að halda innflutningsparty hér á föstudaginn sem kemur sér mjöööög vel þar sem ég er í fríi þessa helga oooooooooog airwaves verða í fullum gangi… Byrja á miðvikudaginn og það er svooo margt sem mig langar að fara og sjá… ég verð eiginlega bara að prenta út dagskrá fyrir sjálfan mig með þeim giggum sem ég bara VERÐ að sjá. Einsog t.d. Sahara Hotnights, Hoffman, Botnleðja, Bang Gang, Dikta, Ensími, Hölt Hóra, Jan Mayen, Manhattan, Maus, Mínus OFL OFL OFL… shit sko… svo má ekki gleyma KK og Keane… þetta verður allsvakalegt myndi ég segja ;) Svenni og Gulla koma á fimmtudaginn og svo hvíslaði að mér lítill fugl bakkabræðurnir Aron og Gaui ætluðu að láta sjá sig enn eina ferðina í borg óttans þessa helgi :P Það er vonandi… allavega þið sem ætlið að koma frá Eyjum mættuð endilega láta mig vita ;)

Annars hef ég voðalega lítið að segja, er alltaf á leiðinni í helvítis klippingu en bara veit ekkert hvert ég á að fara… einhverjar uppastungur? Hef aldrei á ævinni verið með svona mikið hár… :D
Allavega… later

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 19:36 - 14. October, 2004 | Höfundur: einir

Jæja… þá skellti mar sér loksins í að drulla upp nýju looki hérna. Hitt var meira en bara soldið hrátt og ég fékk ógeð á því næstum því áður en ég setti það upp :) En já… ég er svona að fikta mig áfram í þessu nýja kerfi og er að skoða hvað ég get gert og hvað ekki… líst bara helvíti vel á þetta enn sem komið er. Það er ennþá sumt sem ég á eftir að breyta hér taka út og bæta inn og svona… en þið megið endilega láta í ykkur heyra og segja mér hvernig ykkur finnst ;)

Annars skellti ég mér á Ísland – Svíþjóð í gær og verð ég bara að segja að þetta var fínasti leikur. Ísland gat ekki skít eins og vanalega þannig að mar bjóst eiginlega ekki við neinu öðru en að þeir myndu skíttapa… sem varð raunin. 1 – 4 fyrir Svíþjóð og hefði þessi tala örugglega farið hærra hefðu Ljungberg og Larsen ekki verið teknir útaf snemma í seinni hálfleik. En djöfull voru Svíarnir að spila vel. Veit ekki hvort ég sé soldið gulur og blár en mér leið bara andskoti vel í Svíastúkunni… var á tímabili farinn að syngja með þeim

“Vi er svenska fans alliubba!”

. Gaman að þessu. Eiður klóraði nú í bakkann fyrir Ísland í seinni hálfleik eftir að viða fórum 0 – 4 undir í leikhlé. Geðveikt mark hjá honum. En eins og ég segi… þetta var ágætis leikur og vil ég þakka Svíunum sérstaklega fyrir að hafa boðið okkur á leikinn (þótt ég viti að þeir eiga aldrei eftir að lesa þetta og þótt þeir geri það skilja þeir þetta ekki ;)

Svo er það bara vinna um helgina. Árni, Gaui og Aron eru að koma í bæinn á morgun til að fara á Prodigy tónleikana. Spurning hvort þeir gisti nokkuð á Nordica og mar reddi sér miða á þá líka ef mar er búinn snemma í vinnu… HEHE ;) Annars langar mig ekkert svakalega á þessa tónleika ef ég á að segja alveg eins og er. En mar reynir nú samt að hitta strákana… Þótt það eigi held ég eftir að vera mikið að gera um helgina :(

En ég held það sé bara spóla og næsheit í kvöld. Bið að heilsa.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 18:37 - 13. October, 2004 | Höfundur: einir

Kominn aftur í borg óttans og gott betur en það… Mætti í vinnu á mánudaginn hress eftir helgina (*hóst*nei*hóst*). Frekar slappur en það átti nú eftir að breytast þar sem ég og Guðjón fórum upp með hádegisverð fyrir Svíana (sem ég btw var búinn að steingleyma að gistu á hótelinu) og þegar við erum að setja hlaðborðið upp labbar enginn annar en Fredrik Ljungberg inní salinn og á eftir honum kemur Henrik Larsen… ég bara shit… þetta verður ekki mikið rosalegra… og þá labbar Zlatan Ibrahimovich inn um dyrnar… hahahaha. Mér varð óneitanlega hugsað til Ólafar vinkonu en hún er einn mesti Ljungberg fan sem ég hef á ævinni hitt… svo það hefði verið gaman að sjá hana missa vatnið þarna ;)

En já… svíarnir voru greinilega ánægðir með matinn sem þeir voru að fá þarna því þeir buðu okkur á landsleikinn :D Svo mar er barasta á leiðinni á landsleikinn eftir smá tíma… ætlum að hittast nokkrir á poolstofunni eftir smá og svo skella okkur á sjálfan leikinn… og það sem meira er… við erum í SVÍASTÚKUNNI… JEEEE ;)

En allavega… best að drattast í sturtu og niðrá poolstofu…
ÁFRAM SVÍÞJÓÐ ;)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 18:36 - 09. October, 2004 | Höfundur: einir

Jæja þá er maður kominn til Eyja og mikið er nú gott að vera kominn heim á hótel mömmu ;) Var ekki fyrr kominn upp úr Herjólfinum góða en að Svenni kom og náði í mig heim og við fórum ásamt Aroni heim til Yerni’s fuck og þeir sýndu mér hvað þeir eru búnir að vera að gera síðan ég fór… s.s. semja ný lög og var þetta bara helvíti nett hjá þeim. Ekki laust við að mar sakni svolítið að spila með þeim :D

En svo var bara byrjað að sötra og spjalla og fyrr en varði var mar orðinn vel íðí og leiðin lá þá niður á Conero. Þar var gert meira af því að drekka og spjalla og endaði þetta fína kvöld bara eiginlega þar… Fór heim að mig minnir um 3 leitið og vaknaði alveg líka svona skemmtilega þunnur í hádeginu og fór með Svenna niður á Café og fengum við okkur þynnkuhvítlauksbrauð. Svo er mar bara byrjaður að vinna fyrir pabba þar sem hann er að halda árshátíð Ísjakans og stelpurnar verða nú allar að mæta svo einhver þarf að vinna fyrir þær :P En í kvöld held ég að mar kíki nú bara í Höllina á verslunarmannaballið… kemur lítið annað til greina. Magni er nú einmitt líka í eyjum svo það er spurning um að rifja upp gamla góða tíma í fótboltarifrildi inná klósetti… hahahah :D

En allavega… best að fara að koma sér í að þrífa sjoppuna svo það verði sem minnst að gera þegar mar lokar og meiri tími til að sturta í sig nokkrum köldum ;)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 18:34 - 05. October, 2004 | Höfundur: einir

Jæja þá er farið að styttast allsvakalega í að mar komi til Eyja. 2 vinnudagar (miðvikudagur & fimmtudagur) og svo fer ég :D Ekki laust við að það sé kominn smá fiðringur í magann… Þessi vinnuhelgi leið bara óvenjulega hratt og ‘letivikan’ komin enn eina ferðina… þ.e.a.s. þegar ég er bara að vinna 2 daga í viku :D helvíti næs. En annars er lítið að frétta úr Reykjavíkinni… Tók spólu í kvöld með Bergdísi, Steinunni og Gaua. Tókum Robin Hood – Men in Tights… snilldar mynd :D

En já, ég býst við heljarinnar fjöri þegar ég kem til Eyja. Búinn að draga Aron og Gaua með mér í vitleysuna (ekki einsog það hafi einhverntíman verið erfitt… HEHE) og ég held að Bixie verði alveg maður í ’smá sötur’ ;) Svenni sagðist vera til í að setjast niður og sötra og spjalla… fyrr skal ég hundur heita en að ná ekki að draga hann útí eitthvað meira ;) Svo að þið sem eruð að lesa þetta og eruð útí Eyjum… Við skellum okkur á djamm um helgina og ekkert kjaftæði :D

Jæja, klukkan orðin helvíti margt og kannski kominn tími til að fara í háttinn… en mig langar að biðja ykkur sem komið hingað (ykkur fáu sem nennið orðið að koma ;) sem eruð með blogg og ekki á listanum hérna til hliðar að vinsamlegast skilja eftir slóð á bloggið ykkar svo ég geti bætt ykkur inná listann ;)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 20:58 - 02. October, 2004 | Höfundur: einir

Jæja þá var mar að koma heim úr vinnu, var hent heim þótt það væri að byrja 450 manna árshátíð niðrá Nordica… ekkert hægt að nota mig :o Nei ég segi svona, ég á að mæta 6 í fyrramálið og samkvæmt einhverjum samningum verð ég að fá 11 tíma hvíld og Bjössi (yfirkokkurinn) hefur víst verið að fá kvartanir fyrir að leyfa nemum ekki fá næga hvíld… veit ekki hverjir eru að kvarta yfir því… ég er bara feginn ef ég fæ meiri vinnu. Allavega átti þetta að vera svona í fiskinum heima á vöktunum… en hvað vann mar oft tvöfalda og jafnvel þrefalda vakt þar :P Allt fyrir peninga… reyndar eru launin hér ekkert til að hrópa húrra fyrir þannig að það er kannski bara fínt að fá hvíldina… :P

Annars er mar búinn að gera lítið annað en að vinna þessa helgi… Ekki mörg laugardagskvöld sem ég hef eitt einn heima í tölvunni að blogga :D Mar er yfirleitt á 2 bjór á þessum tíma… hehehe ;) Mar bætir fyrir það þegar ég kem til Eyja næstu helgi :D Farinn að hlakka soldið til :P Bannað að bregða samt.. ég er ekki enn farinn í klippingu… hahaha :D Kannski mar láti verða af því að snyrta það í Eyjum bara. Maður spyr sig.

En ég held ég fari að koma mér í háttinn… vinna kl 6. Góða nótt :)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment