Eldri færslur fyrir » September, 2004 «

færsla skrifuð kl. 19:29 - 29. September, 2004 | Höfundur: einir

Nú er allt að verða vitlaust í netheimum eftir að lögreglan lét til skarar skríða í gær og handtók, gerði húsleit og lagði hald á allan tölvubúnað 12 aðila. Þetta er víst eitthvað sem Skífan stendur fyrir og er reyndar eitthvað sem ég er búinn að bíða eftir að skeði síðan þetta DC dæmi byrjaði… Þessir gaurar eru víst eitthvað hátt settir þar á bæ og voru með einhverja HRÚGU af efni á vélunum sínum. Ég verð nú samt að segja alveg eins og er að það verður aldrei hægt að stoppa þetta underground dæmi alveg.. það kemur alltaf maður í manns stað, en jújú, það má alveg reyna…

(ætli ég verði ekki tekinn í yfirheyrslur fyrir að segja þetta ;) En svo segir í hádegisfréttum rúv að þetta sé aðeins byrjun á frekari aðgerður lögreglu… en þar segir einnig að þetta sé stærsta mál sinnar tegundar í heiminum og í frétt á mbl.is segir að þetta hafi verið um 100 notendur… efast um að það sé stærsta mál sögunnar í svona málum… því svona dæmi er RIIIISASTÓRT í öðrum stærri löndum, og örugglega stærra í öllum öðrum löndum þar sem fólk hefur efni á tölvum og interneti :P

En já, mar er í fríi í dag og á morgun og svo tekur helgarvinnan við… það er viðbjóðsveður og helvíti fínt að hanga inní bara ;) Er reyndar að fara heim til Gaua og Steinunnar í áramótaskaupsmaraþon þar sem Bergdís á áramótaskaupin frá ‘84 og uppúr á spólum… hehehe það verður örugglega gaman :D

Haha… svo var ég að lesa um að það á að fara að slá heimsmet í koddaslag í Suður-Afríku, en þar eru um 2400 nemendur að fara að slá núverandi heimsmet í fjölda-koddaslag sem er 640 manna. Krakkarnir fá frí í skólanum til að slá þetta met, en maður spyr sig… mega börn í Afríku við því að taka frí í skólanum? HEHE, nei þetta er mean. Ég er hættur :P

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 00:27 - 28. September, 2004 | Höfundur: einir

Jæja þá er mar kominn aftur í vinnu eftir alveg hreint fínasta helgarfrí… Mjög lítið að gera í vinnunni í dag og er það víst eitthvað svipað á morgun… Reyndar verður vörutalning og fengum ég og Guðjón það skemmtilega verkefni að fá að telja allt sem er í frystinum… þannig að við mætum vel dúðaðir í fyrramálið :)

Annars er nú lítið að frétta af litlum Reykjavíkur-Eini, nema kannski að mar saknar litlu Dísinnar sinnar orðið alltof mikið… Nú er hún búin að vera í burtu í viku og á 3 eftir :( Ekkert sniðugt. En ég trúi ekki öðru en að hún sé að gera það gott í Hveragerði svo það er bara hið besta mál… verst að hún er skíthrædd við náttúruhamfarir og er þetta mesta skjálftasvæði landsins :D

En já, maður gerir nú ekki mikið hérna í borg óttans nema vinna og hanga heima í tölvunni… lítið öðruvísi en heima í Eyjum kannski? :o Tja… þar hafði mar allavega vinina til að draga sig út að gera eitthvað svona einu sinni og einu sinni ;) Arndís er í því hlutverki hér í bænum en tók sér frí í 4 vikur :o Ég kann ekki rass á þetta blessaða strætókerfi, kann að fara í vinnuna og koma mér heim úr henni and that’s about it ;)

En jú það eru að koma mánaðarmót og ég var að spá í að skella mér í það að byrja að æfa badminton… mig hefur alltaf langað til að æfa þessa íþrótt síðan mar byrjaði að leika sér í þessu í leikfimi í Eyjum :D Nú þarf mar bara að drattast niðrí TBR eftir helgi og skrá sig… verð eiginlega að byrja að hreyfa mig svo ég fari ekki að fá ’staðalbúnað kokka’… (kokkabumbu) eins og ég sé óneitanlega mikið af þarna niðrá Nordica (nefni engin nöfn ;) Valið stendur á milli badminton og að byrja að lyfta… mig langar meira að æfa badminton en lyftingarnar koma sér betur í sambandi við vinnutímann… Æji ég sé til hvað ég geri… :P

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 20:25 - 26. September, 2004 | Höfundur: einir

Já kannski að mar ætti að segja frá helginni fyrst þetta var nú einu sinni fríhelgi hjá manni. Byrjaði nú á að veikjast þarna á fimmtudagsnóttinni, fékk einhvern ælupestarskít, hita og viðbjóð sem hvarf nú samt sem betur fer á stuttum tíma…

Á föstudeginum fór ég í bíó með Gaua, Steinunni & Bergdísi, krökkum sem ég er að vinna með niðrá Nordica. Við fórum á myndina White Chicks með Wayans bræðrum sem ég verð að segja að eru algjörir snillingar. Þetta er nú engin stórmynd en allavega lá ég í kasti mestmegnis af myndinni af vitleysunni í þeim :D Gef þessari mynd 3 stjörnur fyrir húmor :) Svo kíkti ég bara á rúntinn með Bergdísi og eftir það var haldið heim… Magni kall hringdi í mig þar sem hann sat og sötraði bjór á Café Katalínu (rétt skrifað? ;) og hljómaði lagið Vertu þú sjálfur í bakgrunn… langaði helvíti mikið að kíkja á hann en þar sem maður er fátækari en hestur gat maður það ekki, svo ég fór bara að sofa.

Svo fóru bæði gærdagurinn og dagurinn í dag bara að hanga heima í tölvunni og gera ekki rass… :P Jú ég náttlega kom þessari blessuðu síðu upp í dag… til hamingju ég! En svo er það bara vinna á morgun og hinn… og svo vinnuhelgi framundan… Það verður ágætt, svo bara eyjar helgina eftir það… vinna fyrir pabba þar sem hann er nú aðfara að halda árshátíð Ísjakans, sem btw verður stærri með hverju árinu. Nú er bónusvideo komið inní þetta dæmi líka :) En já, bið að heilsa ykkur öllum út í Eyjum og hlakka til að hitta ykkur eftir… tæpar 2 vikur ;)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 17:18 - 26. September, 2004 | Höfundur: einir

Jæja þá loksins fékk maður sig til þess að koma þessari blessuðu síðu sinni í gagnið aftur :) Ég var orðinn leiður á blogger.com og langaði að prófa eitthvað nýtt. Fann þessa líka fínu php scriptu sem gerir það að verkum að ég er ekki lengur háður blogger.com þegar mig langar til að blogga… allt bara á servernum mínum… en hverjum er ekki sama um það? :P

Já, en ég er allavega bara kominn til Reykjavíkur og búinn að vera hér í tæpan mánuð. Komst inn á samning í kokknum á Nordica Hotel. Líkar þetta líka bara svona helvíti vel og hef það bara fínt ;) Veit að þið eruð mörg búin að vera að ýta á eftir mér að drulla þessu bloggi í gang en það er bara búið að vera svo mikið að gera að ég hef ekki haft tíma :o En nú ætti þetta að fara að lagast… kominn með þetta svona eiginlega ;) Svolítið hrátt og einfalt útlit en ég kem til með að breyta og bæta þegar ég hef meiri tíma :D

Þangað til næst…
later

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment