Jæja… helgin að renna í hlað og Mánabar búinn að auglýsa heimsins minnstu bjórhátíð sem mun vera í dag, á morgun og á laugardaginn. Ekkert nema gott um það að segja… líterinn á 800.- krónur þannig að það ætti ekki nokkur að láta sig vanta. Þarna mun Ágúst nokkur Halldórsson spila á gítar og halda uppi fjörinu sem ég efa ekki að hann geri
Þess má einnig geta fyrir þá sem ekki enn hafa náð 18 ára aldri að þið getið fylgst með í gegnum gluggana þarna á Vestmannabrautinni. En já, þá ákváðu Jói og félagar í nemó að fresta óvissuferðinni þar sem fótboltastrákarnir okkar eru að fara til Reykjavíkur að keppa í fótboltamóti framhaldsskólanna sem við unnum svo eftirminnilega á síðasta ári… vonandi að þeim gangi jafn vel í ár ![]()
En nú er ég farinn að læra…
Later
færsla skrifuð kl.
18:28 - 17. October, 2002 | Höfundur: einir
Flokkað undir: Almennt
Þú getur fylgst með kommentum við þessa færslu í gegnum RSS 2.0.
Kommentaðu...










Síðustu komment