Jæja… helgin að renna í hlað og Mánabar búinn að auglýsa heimsins minnstu bjórhátíð sem mun vera í dag, á morgun og á laugardaginn. Ekkert nema gott um það að segja… líterinn á 800.- krónur þannig að það ætti ekki nokkur að láta sig vanta. Þarna mun Ágúst nokkur Halldórsson spila á gítar og halda uppi fjörinu sem ég efa ekki að hann geri
Þess má einnig geta fyrir þá sem ekki enn hafa náð 18 ára aldri að þið getið fylgst með í gegnum gluggana þarna á Vestmannabrautinni. En já, þá ákváðu Jói og félagar í nemó að fresta óvissuferðinni þar sem fótboltastrákarnir okkar eru að fara til Reykjavíkur að keppa í fótboltamóti framhaldsskólanna sem við unnum svo eftirminnilega á síðasta ári… vonandi að þeim gangi jafn vel í ár ![]()
En nú er ég farinn að læra…
Later
Eldri færslur fyrir » October, 2002 «
Laugardagurinn 12. október kominn og enn ein helgin hér um bil hálfnuð. Það var ekkert að gera í gær, svo maður bara lagðist fyrir framan imbann og horfði á Silence of the lambs þar sem Anthony Hopkins fer á kostum, eins og hann gerir í Hannibal og á eflaust eftir að gera í Red Dragon. En já, ekkert gert í gær þar sem ekkert var að gerast en í kvöld mun DJ Ívar Amore þeyta skífum á Prófastinum og er 18 ára aldurstakmark og kostar 1000.- kr. inn.
Þar sem ég ætla mér ekki að fara á þetta væri vel við hæfi að þeir sem ætla sér að fara á Prófastinn í kvöld myndu kommenta hér um það hvernig hafi verið… Á meðan liggur mar bara heima og horfir á Hannibal ;D
Jæja… ég er farinn að fá mér að éta…
Jæja, eins og þið kannski sjáið er ég að vinna aðeins í heimasíðunni og gæti þess vegna eitthvað hætt að virka allt í einu og allt ætti það að vera eðlilegt ef það er ekki of lengi. En ef þið finnið eitthvað sem virkar ekki eða er ekki eins og það á að vera þá endilega sendið mér línu á einire@simnet.is. En já, ég henti inn comment drasli þannig að nú getið þið commentað á bullið sem ég posta hérna (í þau fáu skipti sem ég geri það
og endilega farið að nýta ykkur það, í staðinn fyrir að nota t.d. gestabókina í það
En já, svo til að láta ykkur vita stendur til að henda síðunni upp í PHP form þar sem ég hef nú stofnað fyrirtæki í kringum þessa síðu. Ekki þýðir að vera með neitt minna til að sverta ekki mannorð Einir Inc.
Jæja… kveð í bili =)
Þar með er þessu Holloween balli FÍV lokið og verð ég bara að segja að þetta kvöld tókst bara með ágætum (með nokkrum undantekningum þó). Við byrjuðum nokkur heima hjá Stefán nokkrum Birni þar sem var spjallað og nokkur lög tekin á gítar. Svo kom að því að fólk vildi fara koma sér á ballið og fórum ég og Hlynsi þá og gerðum okkur reddí. Hann var Brooke og ég Sally úr glæstum vonum. Svo var komið á ballið og vakti Hlynur mikla lukku með ljósu lokkana sína
En allavega, þetta var ágætis ball og skemmtilegir búningar sem þarna voru. Versta var að þegar ég tók síðustu myndina í myndasafninu þetta kvöld rakst einhver í mig og ég missti myndavélina og linsan festist… en ég hendi henni í viðgerð eins fljótt og hægt er
Og já, ég er búinn að henda myndunum inná myndasvæðið og uppfæra hver var…
Enjoy =)





Síðustu komment