Eldri færslur fyrir » September, 2002 «

færsla skrifuð kl. 19:02 - 26. September, 2002 | Höfundur: einir

met.JPGÞá hefur okkur tekist það! Ég, Hlynsi kaggl og Randi náðum þeim merka áfanga í EÐL 103 um kl 14:44 í dag að slá heimsmet í þrímennings 1+1 = 2, ANS + 1!!! Þetta virtist bara ætla að vera nokkuð venjulegur skóladagur hjá okkur… við vorum sestir niður í tíma hjá Óla Tý og hlustuðum með athygli… það mikilli athygli að við ákváðum nokkuð seinna að reyna við metið hans Grjóna í einmennings 1+1 = 2, ANS +1 en enduðum í að slá metið í þrímennings deildinnni, sem er nú 10.000. Nokkuð merkur áfangi það og vil ég óska okkur til hamingju með þetta og hér er mynd sem náðist á lokastundinni ;)
Don’t try this at home!
Adios amigos…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 21:00 - 21. September, 2002 | Höfundur: einir

Ætlaði bara að benda á að ég henti inn aukalink hérna að ábendingu Hildar Daggar og hans Hersis :) Hver var… verður svona djók þar sem ég ætla að velja hverja helgi (eða hvenær sem ég nenni, fer út að djamma eða hvenær sem eitthvað verður að gerast) hver verður fyllstur, hver verður mestu vonbrigðin og hver verður mesti hustlerinn. Þetta ætla ég að gera bara svona upp á djókið og vona ég að það taki þessu ekki nokkur maður nærri sér… allt gert í gríni :P Endilega kíkið á þetta, thx Hildur og Hersir ;)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 17:59 - 21. September, 2002 | Höfundur: einir

Jæja… þar með er fív köppið búið og held ég að þetta hafi bara tekist ágætlega… Nema það urðu nokkuð miklar tafir þarna í endann. En það þýðir ekkert að röfla um það. Já… ég skemmti mér bara ágætlega, var bara léttur og með myndavélina á mér :P Þegar úrslitin urðu ljós var svo farið og djúsað aðeins meira áður en fólk fór að týnast inn í dal þar sem Njalli sá um gítarstemmningu í Veitingatjaldinu þar. Þar var ágætis stemmning en allt of lítið af liði… En já svona fór það nú, ég veit ekkert hvaða lið vann keppnina en eitt veit ég að mitt lið “Garden of Eden” undir stjórn Hafþórs nokkurs hefðum átt að vinna ;) Jæja… ég tók um 90 myndir og eru þær í myndasvæðinu. Þá er það bara chill í kvöld… vídjó og næs ;)
Later.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 21:57 - 18. September, 2002 | Höfundur: einir

Dajöfull líður tíminn hratt… 2 dagar eftir af skólavikunni og svo FÍV Cup! Ég las á nf.fiv.is að um 60 manns eru nú þegar búnir að skrá sig og vil ég minna fólk á sem á eftir að skrá sig að drullast til að gera það þar sem nemó tekur plaggið niður í hádeginu á morgun og fólk dregið saman í lið á morgun og það svo hengt upp á föstudaginn ;) Í hverju liði verður einn fyrirliði og hlutverk hans er nokkuð ólíkt hlutverki fyrirliða í venjulegu knattspyrnuliði, en hann á að útvega pleisi þar sem liðið hans getur ‘hitað upp’ fyrir mótið :D En já… 2 dagar í fívarann og allt að verða vitlaust. Nú er ég farinn að læra og svo að sofa… láta tímann líða ;)
Bæjó

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 14:55 - 15. September, 2002 | Höfundur: einir

Þar með er þessari fííííínu helgi að ljúka og voru það engir aðrir en sálin hans jóns míns sem spiluðu fyrir dansi á bara alveg hreint ágætis balli í Höllinni í gær. Þess má geta að ég hef ekki farið í Höllina síðan á Vinnslustöðvar slúttinu fræga en þá voru einmitt Hrafnaklettarnir líka… þannig að þetta eru einhverjir 6 mánuðir síðan… :P En Höllin sveik mann ekki. Það var nokkuð mikið af fólki í en samt ekki of mikið… þannig að þetta turnaði bara out to be a marvelous djamm. Ég vil þakka Hlynsa kaggli fyrir að stíga með mér “einis dansinn” og Stebba Hilmars fyrir stuttu pásuna sem hann tók á meðan ég þurfti að tala í símann. En já, enn ein helgin búin og þá er það bara skólinn í fyrramálið… jeeeeeeee. Ég er farinn að fá mér að éta!
Later…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 19:52 - 13. September, 2002 | Höfundur: einir

Þar með er þessi skólavika á enda komin og ekki er það leiðinlegur dagur sem hún endar á. Föstudagurinn 13. september :P Það eru held ég flestir sem hræðast þennan dag meira en allt (þ.e.a.s. þessir hjátrúarfullu) en það má eiginlega segja að þetta sé minn happadagur þar sem ég fæddist nú föstudaginn 13. maí =) En já… þá er komin helgi en reyndar lítið sem maður ætlar að gera í kvöld. Bara krúsið kannski og svo spóla, spara sig fyrir morgundaginn þar sem maður er nú á leiðinni í Höllina (laaaaaaangt síðan ég fór þangað) á ball með Sálinni :) Voðalega lítið meira sem ég hef að segja nema ég elska ykkur 5 sem komið hingað reglulega og skoðið þessa síðu… takk fyrir að refresha svona oft og gefa mér vonir um að þetta sé vinsæl heimasíða HEHE :P

Laaaaaaaaater…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 17:49 - 11. September, 2002 | Höfundur: einir

Jæja, þá er mar kominn heim af LANinu frá Hlyn Ágústs og verð ég að segja að þetta var bara ágætis blast. Veit ekki hvað það er langt síðan ég lanaði síðan… örugglega farið að nálgast ár en hvað með það. Ég (þó aðallega tölvan mín) er búinn að vera á þessu lani síðan á föstudaginn síðasta. En já, ég er kominn heim aftur svo þið sem hafið ekkert annað að gera en að lesa ruglið á þessari twisted heimasíðu minni getið fagnað því :D En ég vil enn og aftur biðja fólk sem hefur eitthvað skemmtilegt að segja að nota frekar Spjallvegginn heldur en Gestabókina. Thank you =) En ég tók einhverjar 6 myndir á þessu lani og ég veit ekki af hverju en ég henti þeim inn í myndasvæðið. Það var Stefán Björn Hauksson sem var valinn ógeðslega bestasti kveikarinn á þessu lani :)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 23:47 - 05. September, 2002 | Höfundur: einir

Jæja… þá loksins asnaðist mar til að henda inn svokölluðu myndasvæði. Þar sem mar er nú kominn með stafræna myndavél verður mar að halda utan um þessar myndir sem mar er að taka hér og þar og eins og er, eru komin inn myndaalbúmin frá Costa del Sol, djammi hjá Jónasi og Busavígslunni… vonandi bara að maður verði vopnaður myndavélinni eins oft og ölvun leyfir í vetur ;)

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment