Jæja, busaballið búið og verð ég að segja að þetta var svosem ekkert sérstakt ball. Ég náttlega fíla buttercup ekki rass sem og svo margir aðrir en jú… ég hafði alveg að meika kvöldið af. Verst fannst mér að það var ekkert að gera eftir ballið og mar var kominn heim um 3 leitið
Vonandi að skólaböllin héðan af verði betri (það er svosem ekki annað hægt =).
Ég nennti ekki að standa í því að taka myndir því miður þar sem ég ætlaði að djamma. Ég hefði betur bara verið edrú með myndavélina
Jæja… ég er farinn að fá mér eitthvað í svanginn, hvítlauksbrauð á Café hljómar vel…
Eldri færslur fyrir » August, 2002 «
Nú í morgun lauk Busavikunni formlega með hinni árlegu busavígslu og verð ég að segja alveg eins og er að tókst hún bara prýðilega. Ekki var annað að sjá en bæði busar og áhorfendur hafi skemmt sér mjög vel þrátt fyrir að nokkurn kulda hafi mátt greina í busunum þar sem frekar kalt var í morgun og voru þau öll smúluð rækilega. En já, einsog alltaf lýkur busavikunni með busaballinu sem verður í kvöld á Prófastinum. Ekki veit ég alveg hvað kostar inn en ég giska á 1500 – 2000 krónur og spilar hljómsveitin Smjörbolli fyrir dansi. Vonandi að sem flestir láti sjá sig í kvöld og busar:
Velkomnir í FÍV
Ég tók nokkrar myndir af busavígslunni og eru þær hér.
Ég fékk skemmtilega símhringingu í gær frá Arndísi vinkonu sem var að segja mér að hún hefði nýverið frétt af þessari heimasíðu í gegnum Ólöfu og var ekkert alltof ánægð með að ég hafi ekki verið búinn að segja henni frá síðunni. En ég ætla að reyna að bæta fyrir það með því að henda inn hérna bloggi tileinkuðu henni…
Endilega haltu áfram að fylgjast með okkur eyjavitleysingunum hérna á netinu og hlakka til að sjá þig á fimmtudaginn
En bæ þangað til…
Jæja þá er mar að fara í Herjólf í fyrramálið… sækja konuna til Keflavíkur þar sem hún kemur frá úglöndum
Þetta væri svosem ekki frásögum færandi nema fyrir það að við komum svo til Eyja sama dag með seinni ferð Herjólfs HEHE… ef okkur tekst það þ.e.a.s. En já, þessi busavika er búin að vera alveg ágæt (þessir 2 dagar sem eru búnir af henni já
en ég held það verði ekkert í bænum í kvöld þar sem veðrið er eitthvað voðalega íslenskt í dag. En ég ætla að minna fólk á að á fimmtudaginn verður busauppboð þar sem þið getið keypt ykkur eitt stk. eða jafnvel fleiri busa og látið þá gera allskyns hluti fyrir ykkur. T.d. taka til í herberginu ykkar, þrífa bílinn ykkar, þrifið hesthúsin ykkar eða bara hvað sem er…
En nú er komið nóg af bulli og ég er farinn að læra…
Later…
Og ekki hættir mar að djamma þótt mar sé kominn heim frá rúmlega 3 vikna djammi (með þjóðhátíðinni
því 2 síðustu kvöld skellti mar sér út og var þetta bara ágætis upplyfting en ekkert samt sem jafnast á við Costa del Sol… (nú á mar alltaf eftir að miða allt djamm við Costa + það að mar á sjaldan eftir að tíma að kaupa sér áfengi hér eftir þar sem mar var vanur að skjótast bara útí súpermarkað á spáni og versla sér einn kassa á rúman 500 kall… =) En svona er lífið og þess má geta að ég tók örfáar myndir heima hjá Jónasi í gær og eru þær hér.
Jahææja…. þá er mar kominn aftur eftir hvorki meira né minna en rúmlega mánaðar pásu frá skrifum á þessa síðu. Ég veit að þið eruð mörg þarna úti sem hafið verið að því komin að huga að sjálfsvígi en þetta er allt í lagi krakkar mínir, ég er kominn aftur. Og það er nú alls ekki stutt frá því að segja hvað hefur drifið á mína daga þennan síðastliðna rúma mánuð. Fyrst var það þessi líka roooosalega vindsama þjóðhátíð hérna í byrjun ágúst þar sem allt saman (djammið!
hófst á miðvikudegi og í rauninni lauk því ekki fyrr en í fyrradag… þar sem maður var þá að koma heim eftir 2 vikna dvöl á Costa del Sol á Spáni
))) Í stuttu máli sem sagt hefur þetta verið GEÐVEIKT stuð og endalaus hamingja hér á bæ. En einsog orðatiltækið sem ég skáldaði upp ekki alls fyrir löngu segir “Heima er best” sannaðist það þegar ég kom heim í gær með Herjólfi eftir fína ferð og steig á land í Eyjum í roki og rigningu. Búið að vera geðveikt stuð og nú er ekkert annað að gera en að fara að gera sig reddí fyrir skólann og bíða eftir kærustunni sem ákvað ásamt móður sinni og bróður að skjótast til Benidorm þarsíðasta miðvikudag, en hún kemur heim næstkomandi miðvikudag… jeij ![]()
En já, svona fyrir ykkur sem viljið sjá eitthvað smá brot úr ferð okkar félaganna til Costa del Sol 7 – 21 ágúst 2002 þá tók ég um 200 myndir og geymi þær hér.










Síðustu komment