Hmmm… helgin fór ekki alveg einsog var planað
Við slepptum því að fara í Húsafell vegna dræmrar þátttöku. Ákváðum bara að vera í Eyjum og var fengið sér í glas bæði í gærkvöldi (þá var goslokahátíðin ógurlega niðrí Skvísusundi með Eygló, Lalla og Sigurrós á gítar… hörkustuð!) og á föstudaginn þar sem við grilluðum heima hjá Hlynsa kalli. Rauðvínsleginn svínahnakki… jummí
Þar vorum það ég, Hlynur, Sæbjörg, Hildur Dögg, Viktor Smári og svo bættist Stebbi við aðeins seinna um kvöldið. Svo var það bara chill yfir góðri tónlist með bjór í hönd og ákvað liðið svo að fara í partí til Hlyns tigers. Þá fór Einir bara heim að sofa til að hvíla sig fyrir morgundaginn en aðalástæðan fyrir því var skortur á áfengi þetta kvöld
En já, þetta var fínasta helgi og nú er það bara að halda sér á mottunni fram að Þjóðhátíð… sem er já btw bara 25 dagar í !!!
En ég er farinn út í góða veðrið…
Bæjó










Síðustu komment