Jæja, þriðjudagurinn 16 júlí runninn upp og enn bíður maður eftir þjóðaranum. Voðalega lítið sem ég hef að segja núna en málið er bara að það ég hef ekki RASS að gera! Þannig að ég ákvað að setja niður fyrir framan tölvuna (þar sem ég eyði nú nokkuð miklum tíma fyrir
og skrifa eitthvað á “eininn”.
En já, ég er nú búinn að ‘registera’ mIRCStats dótaríið mitt og er komið alveg hellingur af nýjum features í það allt saman. Skoðist hér. Þar er komið fullt af personal stats og chat partners (s.s. hverjir tala mest saman á rásinni o.s.fr.v.) og margt margt fleira
helvíti gaman að leika sér í þessu dóti. Get t.d. sett inn myndir við hliðina á hverju nicki í personal stats… kannski mar dundi sér við það seinna
þá verður nú erfitt að velja úr öllu úrvalinu sem er til af hersi á drunk.is. HEHEHE ![]()
Jæja… nóg í bili. Bið að heilsa,
Bæjó
Eldri færslur fyrir » July, 2002 «
Jæja, þá er enn ein helgin í lífi Einis á enda og endaði það með svona medium stuði í heimahúsi í gær. Þetta byrjaði þannig að það var hringt í mig og mér boðið í afmæli hjá Árna Óla, það var bara fámennt en góðmennt spjall heima hjá Söndru, kærustu Árna. Árni bauð uppá pizzur og kók og svo settumst við inní stofu þar sem hann bauð uppá rauðvín. Svo fékk ég aðra hringingu og það var Ásta Sigga sem vildi fá okkur heim til sín með gítar… við ákváðum að slá til þar sem hún var ein heima og fórum heim til hennar. Þar aftur á móti fann maður aldrei réttu stemmninguna og það var einsog fólk vissi ekki hvað það vildi gera. Sumir voru að hlusta á tónlist, aðrir að spjalla og svo enn aðrir sem bara fóru út HEHE. En já, þetta endaði um klukkan 4 þar sem Ásta ætlaði að fara að sofa.
Ég vil þakka Árna fyrir skemmtilegan gítarleik og Arndísi fyrir frábæran söng
Góða kvöldið. ég hef frá litlu að segja núna þar sem ég fór á frekar slappt djamm í gær… ef það mætti kalla þetta djamm þ.e.a.s. En allavega, mér og Sæbjörgu (ásamt nokkuð mörgum fleiri) var boðið í afmæli hjá Söru Björg og Jessý, en þær fögnuðu 18 ára afmælinu sínu. Við mættum um svona 10 leitið með sitthvora kippuna af tuborg í plasti, þar sem sara var búin að segja að það yrði boðið uppá rauðvín í þessari veislu!?!? Hvar var rauðvínið Sara?
Segi svona… en já, það var grillað lamb og franskar í matinn ásamt piparsósu og allskyns salati og dressingum. Fínasti matur og þakka ég enn og aftur fyrir mig
svo var gítarinn tekinn upp og sungið aðeins en svo ákvað liðið að fara að skella sér á skelfinguna (Halla á kantinum) þar sem kostaði heilar 1000 krónur inn. Held þeir hefðu betur borgað fólki fyrir að koma þangað þar sem það var vægast sagt MJÖG fámennt þarna, að meðaltali voru svona 10 – 15 inni í einu… en já svo eftir þetta fórum við heim til Söru Bjargar þar sem fólki var lofað gítarpartíi en þegar þangað var komið voru svona 4 manns þar og öll stemmning frekar döpur… þannig að við fórum bara heim um 6 leitið.
En já, Hildur Dögg vinkona benti mér á þessa skíjemmtilegu síðu sem fékk mig til að hlæja soldið, vildi bara deila henni með ykkur. Smellið hér.
Takk fyrir og góða nótt
Jæja… 21 dagur í Þjóðhátíð í Eyjum 2002! Þjóðhátíðarlagið er komið í mp3 formi og er það að finna hér. Þetta lag er með sömu flytjendur og árið 1999, Hreim og Lundakvartettinn. Nú býður maður bara eftir gítargripunum við þetta lag… því gítarinn verður allsstaðar annarsstaðar en heima á Þjóðhatíð =) Ég verð bara að segja einsog er að ég er svona byrjaður að venjast þessu lagi… ekki eins slæmt og þegar ég heyrði það fyrst
En allavega… ég ætla að fara að kíkja á Sæbjörgina mína í vinnu…
Bæjó
Jææææja… 14 stiga hiti úti og smá gola. Ég fór í pottana áðan og þvílíka steikin! Mar er bara kominn í Costa del Sol stuð enda ekki nema 29 dagar í að mar fari út! =)) En já, lítið að frétta af manni núna… enda bara þriðjudagur. En það er allavega byrjað að henda mannvirkjunum inní dal þannig að mann er svona líka farið að hlakka soldið til Þjóðhátíðarinnar. Verð samt að segja að eftir að hafa heyrt þetta nýja þjóðhátíðarlag þá er ég ekkert rosalega spenntur… vona samt að þetta verði líkt og í fyrra… mar venjist þessu með tímanum
(mér fannst þjóðhátíðarlagið í fyrra skelfing þegar ég heyrði það fyrst… en svo GEÐVEIKT þegar fór að líða að þjóðhátíð og á þjóðhátíðinni =) En já, ég er farinn aftur út í sólina!
Costa del sol baby!
bæjó
Hmmm… helgin fór ekki alveg einsog var planað
Við slepptum því að fara í Húsafell vegna dræmrar þátttöku. Ákváðum bara að vera í Eyjum og var fengið sér í glas bæði í gærkvöldi (þá var goslokahátíðin ógurlega niðrí Skvísusundi með Eygló, Lalla og Sigurrós á gítar… hörkustuð!) og á föstudaginn þar sem við grilluðum heima hjá Hlynsa kalli. Rauðvínsleginn svínahnakki… jummí
Þar vorum það ég, Hlynur, Sæbjörg, Hildur Dögg, Viktor Smári og svo bættist Stebbi við aðeins seinna um kvöldið. Svo var það bara chill yfir góðri tónlist með bjór í hönd og ákvað liðið svo að fara í partí til Hlyns tigers. Þá fór Einir bara heim að sofa til að hvíla sig fyrir morgundaginn en aðalástæðan fyrir því var skortur á áfengi þetta kvöld
En já, þetta var fínasta helgi og nú er það bara að halda sér á mottunni fram að Þjóðhátíð… sem er já btw bara 25 dagar í !!!
En ég er farinn út í góða veðrið…
Bæjó





Síðustu komment