Eldri færslur fyrir » June, 2002 «

færsla skrifuð kl. 22:24 - 28. June, 2002 | Höfundur: einir

Maaaaaaaaaaaaaaaan… ég er latari en andskotinn. Hef ekki fengið mig til að henda einhverju hingað inn og svo er bara svo lítið búið að vera að ske hjá manni. Það lítur út fyrir að það verði ekkert að ske þessa helgi en ég er víst samt að fara að fá mér í glas vegna þess að ein ónefnd var að vinna síðustu helgi þegar Jónsmessudjammið var og langar að fá sér í glas núna.

En já… svona er þetta, ég með kvef og viðbjóð og ekkert að gerast um helgina. Manni getur ekki annað en byrjað að hlakka til næstu helgar þar sem við ætlum nokkur að skella okkur í Húsafell :P Svo er þetta náttlega fyrst helgin í júlí sem þýðir 2. mesta ferðahelgi ársins þannig að það á ekki fara? Hmmm… einsogbrenna.jpg er erum það ég, Sæbjörg, Hildur Dögg, Hlynsi, Ólöf, Árni Óli og Sandra… eða allavega eftir að vanta fólkið þarna :) Og stemmningin verður rosaleg… útilega, áfengi, varðeldur og gítar… Mini Þjóðhátíð bara ;D Og meðan ég man… það eru ekki nema 34 dagar í Þjóðhátíð Vestmannaeyja 2002!. Ég er að deyja úr spennu!

En hvað með það… ég er farinn að fá mér í svanginn á Café.
Later

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 17:17 - 23. June, 2002 | Höfundur: einir

Jæja, soldið mikið langt síðan mar uppfærði þessa blessuðu síðu sína… Málið er bara það að mar fór norður á Djúpuvík á um miðja síðustu viku og kom ekki aftur heim fyrr en á miðvikudaginn síðasta. Þá hafði mar nú nóg annað að gera en að henda einhverju hér inn. En allavega, það er NÓÓÓG að frétta og ég ætla að byrja á að segja frá ferðinni á Djúpuvík sem var bara ágætis ferð eftir allt saman. Við fórum uppá land á fimmtudaginn í þarsíðustu viku, tókum bílaleigubíl og fórum í bláa lónið í geðveiku veðri, eitt af því þægilegasta sem ég hef gert leeeeeengi. Svo fórum við bara að slæpast í Reykjavíkinni og fórum svo bara að sofa. Næsta dag var haldið til Djúpuvíkur og vorum við samferða Ellisif (frænku Sæbjargar) og kærastanum hennar, Magga. Ferðin tók tæpa 7 klukkutíma þar sem bíllinn var gjörsamlega að hrynja á leiðinni. En við komumst nú á leiðarenda að lokum. Ég bjóst nú ekki við einhverju rosalegu þar sem þetta var sextugs afmæli hjá frænda Sæbjargar… en jú, þótt það hafi tekið 6 – 7 tíma að keyra þangað á ógeðslegustu vegum landsins og ekki sést til sólar ALLAN tímann þá var mjög mikil stemmning þarna, fínt fólk og FULLT af víni… HEHE :P Við gistum í tjaldi og og komst ég að því þarna að stelpur eru plássfrekar og ræna af manni sænginni í svefni… ég vaknaði eitt skiptið að FRJÓSA úr kulda og leit við og þar var lítil Sæbjörg undir hlýju sænginni minni og leið bara vel að mér sýndist… en nóg með það svo komum við aftur til Reykjavíkur á mánudeginum og meikuðum ekki að fara aftur til Eyja fyrr en á miðvikudeginum ;) S.s. þetta var hin fínasta ferð.
En já, á þessum tíma missti maður af MIKLU í HM :( öll stærstu liðin dottin út og nú erum við komin í 4 liða úrslit og liðin sem eru eftir eru Brasilía, Tyrkland, Þýskaland og Suður Kórea. Sárast finnst mér að Spánn sé dottið út þar sem ég horfði á þann leik og maður fékk sterklega á tilfinninguna að dómurunum hafi verið mútað þar sem þeir dæmdu 2 fullkomlega lögleg mörk af Spánverjum, og endaði þannig að Suður Kóreumenn unnu í vítaspyrnukeppni… frekar sorglegt.
Svo er það djaaaaaammið… mögnuð helgi er á enda og var föstudagurinn algjör snilld. Mér og Svenna var boðið í afmæli hjá Röggu frænku hans Svenna og mættum við þangað um átta hálfníu í mat og bollu. Mar þekkti eiginlega ekki neinn þarna en það lagaðist allt þegar líða tók á kvöldið og fólkið orðið hífað :D Mjög hresst lið en svo kom að því að halda á leið í skvísusundið þar sem Jónsmessugleðin var haldin og menn í svörtum fötum spiluðu fyrir dansi. Fínasta djamm sem endaði heima í stofu fyrir framan sjónvarpið að horfa á Spánn vs. Suður Kórea ;) Minni á punktinn þar sem fullt af myndum af þessu djammi eru.
En ég kveð í bili…
Bæjó :P

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 17:09 - 07. June, 2002 | Höfundur: einir

Jæja, 3 leikir í HM í morgun… fyrst mættust Svíar og Nígeríumenn… sá leikur endaði 2 – 1 fyrir Svíþjóð í hörkuspennandi leik. Svo voru það Spánverjar og Paragvæar sem spiluðu og í hálfleik var staðan 0 – 1 Paragvæum í vil. Í seinni hálfleik komu Spánverjar mun sterkari til leiks og snéru leiknum algjörlega við og endaði hann 3 – 1 fyrir Spán. Svo var komið að aðalleiknum, Argentína vs. England! Þetta var víst alveg ROSALEGUR leikur sem ég því miður missti af sökum óviðráðanlegra ástæðna… en allavega var eina markið í þessum magnaða leik skorað rétt fyrir lok fyrrihálfleiks og var það Beckham sem skoraði fyrir England úr vítaspyrnu. Niðurstaða, 0 – 1 sigur Englands.

Jæja nóg um HM… það eru margir sem hafa verið að spurja um hvort eitthvað verði að ske í kvöld og ég get staðfest það hér og nú að það verður Lokaball FÍV í kvöld.

Staður: Prófasturinn
Tími: Ég giska á miðnætti
Hljómsveit: Inferno & DJ’ar
Aðgangseyrir: 1000 kr.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 16:07 - 06. June, 2002 | Höfundur: einir

Þar með er það komið á hreint sem allir hafa verið að velta fyrir sér en lokaball FÍV verðum á morgun, föstudag á Prófastinum og samkvæmt auglýsingunni sem hangir hérna inní búð hjá pabba munu Inferno, hin ógurlega hljómsveit Njalla og félaga spila ásamt einhverjum DJ’um. Þetta er 16 ára ball (loksins segja sumir… ekki ég HEHE… ;) og ég er ekki alveg með tímann á því… ætli þetta byrji ekki um miðnætti. En allavega, löngu kominn tími á þetta ball og vonandi að fólk mæti á þetta :P En ég er á leiðinni í bíó núna… SPIDERMAN!
Later peeps!

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 15:05 - 05. June, 2002 | Höfundur: einir

Jææææja… það gerðust nokkuð merkilegir hlutir í HM í morgun. 3 leikir á dagskrá og fyrst voru það Rússland og Túnis sem mættust í nokkuð lítið spennandi leik sem lauk með 2 – 0 sigri Rússa. Svo kom einn magnaður leikur á milli Bandaríkjamanna og Portúgala. Flestir bjuggust nú við því að Portúgalir myndu taka Bandaríkin nokkuð létt, en annað kom þó í ljós. á fyrstu 35 mínútum leiksins komust Bandaríkjamenn í 3 – 0. Rétt fyrir leikhlé náðu Portúgalir að minnka muninn í 3 – 1 og lauk leiknum 3 – 2 og er nokkuð ljóst að ef Bandaríkjamenn spila svona út allt mótið eiga þeir möguleika á að ná langt. Síðasti leikur dagsins var svo á milli Þýskalands og Írlands þar sem Þjóðverjar skoruðu á 19. mínútu leiksins og héldu því forskoti alveg þangað til 2 mínútúr voru komnar yfir venjulegan leiktíma að Írar komust innfyrir vörnina hjá þeim og jöfnuðu og skemmdu þar með fyrir Þjóðverjum sem hefðu verið pottþéttir uppúr riðlinum með sigri í þessum leik. Jæja, best að fara að gera eitthvað sniðugt… taka sér spólu eða eitthvað ;)
Laaaaaater..

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 00:04 - 03. June, 2002 | Höfundur: einir

Jæja… komið sunnudagskvöld og geðveik helgi á enda komin :( Og já, þá er kominn tími til að kynna úrslit könnunnarinnar sem ég setti hér upp á síðunni í byrjun helgarinnar. Spurningin var “Hver verður nú fyllstur um helgina. Einsog við mátti búast og mar var eiginlega búinn að sjá fyrir þá vann hann Hersir með miklum yfirburðum. Það tóku 45 manns þátt í könnunninni og kusu 23 af þeim Hersi eða 51%. Á eftir honum komu þeir Wixi, Hjölli Sveins og Pálmi í Stórhöfða allir með 4 atkvæði. Þegar ég tilkynnti Hersi þetta áðan var hann hæstánægður með tíðindin og lét hafa eftir sér að þetta hafi verið erfitt, en eftir að hafa drepist óteljandi sinnum yfir helgina útum allan bæ þá hafi þetta komið að lokum og sagðist geta reddað sér meira víni fyrir kvöldið bara til að gulltryggja sigurinn. Ég vil þakka Hersi og öllum þátttakendum könnunnarinnar fyrir skemmtilega helgi og sanngjörn og mjög fyrirsjáanleg úrslit…
Góða nótt

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 15:58 - 02. June, 2002 | Höfundur: einir

Þar með er þessari blessuðu sjómannahelgi að ljúka… þetta var nú meiri snilldin. Á föstudaginn var það Lundinn og chill þar bara og svo í gær byrjuðum ég og Svenni heima hjá honum og svo kom Hlynur og við fórum til Ástu Siggu og djúsuðum aðeins þar. Svo var kominn tími á ballið uppí Höll, Paparnir léku fyrir dansi og var alveg stúúútfull Höllin og gott betur en það. Þetta var magnað. Það var eitthvað af slagsmálum þarna einsog vanalega… en svo fór mar heim til Birnu með Hlynsa kaggli og fékk grillaðar pulsur og læti, ekki leiðinlegt eftir svona ball :P En já… þetta var fínasta kvöld og mar endaði heima hjá sér eitthvað um 6 leitið…
En já nóg um það… HM er í fullu fjöri og í morun voru 4 leikir spilaðir! Fyrst voru það Argentína og Nígería sem mættust og lauk þeim leik með 1 – 0 sigri Argentínu (ég spái Argentínu titlinum ;) . Svo spiluðu Paragvæ og Suður-Afríka og lyktaði þeim leik með 2 – 2 jafntefli… Þar á eftir léku England og Svíþjóð sem endaði einnig með jafntefli, 1 – 1. Síðasti leikurinn var svo leikur Spánar og Slóveníu sem lauk með 3 – 1 sigri Spánverja… Verst hvað þessir helvítis leikir eru alltaf snemma! Þetta er alltaf á meðan maður er í vinnu!!! Dajöfull… En allavega… ég er farinn út í góða veðrið ;)
Bæjó

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 20:01 - 01. June, 2002 | Höfundur: einir

Þá er loooooooksins að koma hið langþráða Sjómannadagskvöld þar sem allt á eftir að fara úr böndunum… HEHE ;) Búinn að vera fínn dagur, við fórum í fótbolta áðan einhverjir 10 – 15 krakkar útá Týsvelli til að drepa tímann, en nú er komið að því… ég er á leiðinni heim til Sveinbjörn að byrja að sötra smá bjór og svo finnur maður sér eitthvað rosalegt partý =) Ég hitti Hersi áðan útá Týsvelli og mér sýndist hann alveg verðskulda það að vera í efsta sæti í könnunninni hérna á einir.com :P En svona er þetta, ég ætla að fara að fá mér eitthvað í gogginn og svo er ég farinn að fá mér bjóóóóóór…
Seinna.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 12:56 - 01. June, 2002 | Höfundur: einir

Jæja, 2. dagur HM í knattspyrnu og voru 3 leikir á dagskrá í dag. Klukkan hálf 7 í morgun voru það Írland og Kamerún sem mættust og skildu þau jöfn 1 – 1. Svo kl 9 mættust Úrúgvæ og Danmörk og lauk þeim leik með sigri Dana 2 – 1. Nú eru hinsvegar Þjóðverjar og Sádí Arabía að spila og er seinni hálfleikur nýbyrjaður. Staðan er 4 – 0 fyrir Þjóðverja einsog er… þvílíka skömmin að þessir arabar skuli hafa komist í þessa keppni. Þá hefði maður nú frekar viljað sjá lið einsog Holland í keppninni.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment