Eldri færslur fyrir » May, 2002 «

færsla skrifuð kl. 12:55 - 31. May, 2002 | Höfundur:

Jæja… þá er HM í fótbolta loooooooooksins byrjað og stendur núna yfir fyrsti leikur mótsins á sem er viðureign núverandi heimsmeistara Frakka á móti nýliðunum frá Senegal. Nú er kominn hálfleikur og er staðan 0 – 1 fyrir Senegal. Hörkuspennandi leikur með nokkrum skemmtilegum sóknum. En allavega, þetta verður eini leikurinn í dag og á morgun fara fram 3 leikir; fyrst leika Írland og Kamerún og verður sá leikur kl. 6:30, svo leika Úrúgvæ og Danmörk kl 9:00 og svo Þýskaland og Sádí Arabía kl. 11:30 að íslenskum tíma. Þannig að það verður nóg að gera hjá okkur knattspyrnuáhugamönnum næsta MÁNUÐINN! Jeeeeeeeeeeee…
En svona rétt í lokin vil ég minna mannskapinn á að taka þátt í könnunninni sem ég setti hérna upp og er linkurinn hérna til hægri ;)
Veriði bless

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 17:53 - 30. May, 2002 | Höfundur:

Hmmm… ok, ég er latur við að update-a hér ;) En allavega, það fer að líða að sjómannadagshelginni! Papar í Höllinni og allt vitlaust bara… Þannig er það nú búið að vera síðastliðna daga að nokkrir peyjar hérna í Eyjum hafa tekið sig til og spilað fótbolta í góða veðrinu sem hefur verið hér síðastliðna daga og verð ég að segja að það er fátt skemmtilegra að gera í góðu veðri. Ég er búinn að vera að drepast úr harðsperrum en það fer nú að lagast =)
En jæja… best að hafa þetta bara stutt þetta skiptið, ég er að sálast úr hungri og mig langar að drattast eitthvað út ;)
Later folks…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 12:51 - 25. May, 2002 | Höfundur:

Ok, gærkvöldið var sniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiilld! Þetta byrjaði allt þannig að ég hitti Hlynsa kaggl á einhverri fjölskylduskemmtun þar sem Brutal var að spila og við ákváðum, ásamt Wixa, gítarleikara Brutal að skella okkur í þessa óvissuferð sem ónefndur stjórnmálaflokkur stóð fyrir um klukkan 8 sama kvöld. Við hittumst allir heima hjá Hlyn rétt yfir átta og röltum svo áleiðis niður í Ásgarð (þar sem rúturnar biðu, og FRÍTT áfengi… :) þar sem við fengum okkur nokkra kalda og ég hringdi í Svenna og Stebba sem komu svo rétt áður en rúturnar fóru. Keyrt var um alla eyjuna og stoppað út um allt þar sem ýmislegt fjölbreytilegt var gert. T.d. gat mar farið á hestbak á einum stað en það eina sem við hugsuðum um var bollan sem var boðið uppá í einhverjum 20 lítra mjólkurhlunk… Mjög góð bolla :P Svo fengum við að kasta vatnsblöðrum í frambjóðendurna niðrí dal og læti og óvissuferðin endaði niðrá Skans þar sem voru grillaðar pylsur ofan í liðið og boðið uppá meiri bjór ;) Menn voru orðnir skuggalega drukknir þarna og dæmi um það er ónefndur maður sem var að hlaupa um fjöruna þarna í anda Baywatch og endaði kylliflatur í þarahrúgu sem var í enda fjörunnar. Svo var öllum sagt að fara aðeins lengra í austur þar sem hver annar en Árni Johnsen beið með gítarinn í hönd og varðeld sér við hlið.. manni var farið að líða einsog á Þjóðhátíð bara! Og gott ef það eru ekki bara einhverjir 68 dagar til Þjóðhátíð á meðan ég man :D En allavega, þetta kvöld var algjör snilld… Ég endaði heima dauður á endanum á rúminu mínu í öllum fötunum samkvæmt nokkuð áreiðanlegum heimildum :P En svona er lífið… svo er það náttúrulega kosningadjammið í kvöld…! >:)
Kveð í bili…

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 19:49 - 20. May, 2002 | Höfundur:

Jæja, svo þið segið það já… 3 daga frí frá vinnu á enda og lítið sem mar gerði. Á föstudaginn gerði mar akkúrat ekki rass… sótti reyndar Ólöfu vinkonu í Herjólf sem er núna komin til að vera yfir sumarið, JEIJ! ;o) En já, svo á laugardeginum var eitthvað minniháttar fyllerí á vinahópnum heima hjá Gullu vinkonu sem var ein heima. Vorum bara svona milli 5 og 8 allan tímann og hlustað á allskyns tónlist, talað saman og spilað smá á gítar. Ágætis kvöld sem endaði um kl hálf 6 heima sofandi (allavega ég ;) Svo í gær var bara rúntað til miðnættis eða svo og svo tókum ég og Sæbjörg spólu, Corky Romano sem ég verð að segja að er algjör snilld… hélt ég myndi ekki hætta að hlæja… Hahahahaha. En allavega, svo er kominn mánudagur núna, Sæbjörg fór í vinnu kl. 6 þannig að ég tók mig til og sló blettinn fyrir mömmu og pabba, svo er pabbi að grilla núna svín og kartöflugratínið er að verða tilbúið inní ofni :D Þannig að ég ætla að fara að drulla mér að éta áður en þau klára þetta…
Bið að heilsa ykkur…!

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 18:48 - 16. May, 2002 | Höfundur:

Ok, ég er orðinn 19 ára… shit. Varð 19 ára þann 13. maí síðastliðinn. Hef ekki postað í allan þennan tíma því ég er enn að ná því að ég er orðinn 19 ára… HEHE ;) nei ég segi bara svona, en vá… mér finnst ég vera orðinn gamall. En hvað með það, lítið búið að vera að ske frekar en vanalega hjá mér… bara vinna og svona leiðindi. En það er að koma helgi og ÁMS að spila í Höllinni á morgun ;) Svo frí á mánudaginn þannig að þessi helgi boðar ekki gott :D Arndís og Sara eru að koma með Herjólfi í kvöld um 10 leitið og mar verður þar að taka á móti þeim. Arndís á svo afmæli á laugardaginn og þá verður sko fengið sér heldur betur neðan í því =)
En nú ætla ég að fara að drulla mér út að borða í boði Sveinbjörns í tilefni þess að ég átti afmæli á mánudaginn :D
Yfir og út.

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 16:45 - 12. May, 2002 | Höfundur:

Jææææææææææææja… langt síðan ég póstaði síðast, vá mar. Well, what can I say… I’m lazy. En allavega, þá er ekki mikið búið að vera að ske hjá mér… bara brjáluð vinna alltaf en ég skellti mér nú samt á árshátíð Vinnslustöðvarinnar í gær og það var vægast sagt algjör snilld! Dagurinn byrjaði þannig að ég fór í vinnu kl 5 um morguninn til kl 12. Svo kom ég heim og lagði mig til að verða 5, fór í sturtu og hafði mig til fyrir árshátíðina, jakkaföt og læti. Svo fórum ég, Svenni, Ólöf og Gulla (deitin okkar HEHE) heim til Andreu vinkonu þeirra og byrjuðum að djúsa þar. Svo skelltum við okkur uppí höll og ég held við höfum verið þeir fyrstu á staðinn (starfsfólk talið með) og vil ég þakka Sveinbirni hér og nú fyrir það! En svo fór að líða á kvöldið og fólkið fór að týnast uppí höll. Maturinn var framreiddur, sjávarréttahlaðborðið var ein mesta snilld sem ég hef séð á ævinni… og ekki var bragðið verra! Beikonvafinn skötuselur, naammmmm! Svo þegar fólkið var orðið satt, þá var sýnd mynd sem tekin var upp í tilefni af árshátíðinni og hún var algjör snilld… þótt hún hafi verið sýnd uncut! :D En já, eftir skemmtiatriðin fórum ég og Svenni heim að skipta um föt þar sem við vorum á leiðinni uppí Hrafnakletta þar sem 10. bekkingar voru að fagna því að vera búnir í samræmdu prófunum. Svenni var orðinn vel hífaður en ég fann rétt á mér.. en svo þegar við komum uppí Hrafnakletta sá ég að ég var ekki á leiðinni að fara að djamma neitt lengi þessa nótt, mætti einni ónefndri Sæbjörgu á leiðinni og var hún vægast sagt mjöööööööööööööööög drukkin og stóð varla í lappirnar… þannig að þetta kvöld endaði þannig að við vorum komin heim um 2 leitið að mig minnir… sjibbí ;)
Allavega… læt þetta duga í bili.

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 20:43 - 07. May, 2002 | Höfundur:

Það er lítið sem gengur á í lífi lítils Einis þessa dagana en ég bíð spenntur eftir helginni… Árshátíð Vinnslustöðvarinnar og Hrafnaklettar… sama daginn! Þetta verður meiri snilldin! Við lyftaramennirnir verðum með eitthvað rosalegt atriði á þessari árshátíð sem við eigum að æfa á fimmtudaginn, ég ætla bara að vona að ég og Sveinbjörn verðum með rænu á árshátíðinni til að klára þetta atriði með þeim :D Svo verða það Hrafnaklettar seinna um kvöldið þar sem 10. bekkingar munur vera að halda uppá það að vera loksins búin í samræmdu prófunum… eitthvað sem ég gerði fyrir 3 árum. Hmmmm… er ég orðinn svona gamall :( Well… nægur tími til að velta sér uppúr því. Nenni ekki núna, en ég kveð í bili og vonast til að hitta sem flesta á djamminu um helgina! Þetta verður rosalegt…
Bæjó

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 04:00 - 05. May, 2002 | Höfundur:

Jæja, þá er mar kominn heim eftir nokkuð slappt ‘djamm’ ef svo má kalla það. Fór heimtil Söru vinkonu og við vorum þar nokkur. Það er náttlega byrjað í þessu venjulega, þau fóru í drykkjuleik og eitthvað drasl í byrjun kvöldsins en ég og Hannes vorum niðrí stofu að spila á gítar og syngja =) Svo fór að líða á kvöldið og voðalega lítið skeði… Fólk var mest allan tímann úti að reykja eða að spjalla saman inní eldhúsi. Svo uppúr 3 fór fólkið að týnast heim en Sara, Siggi Freyr og Hörður ákváðu að fara á lundann þannig að ég fór bara heim með fólkinu. Lítið sem skeði þetta kvöld nema það að Hlynur nokkur Herjólfsson kom þarna við heima hjá Söru á leið sinni á Hippaballið í Höllinn nær dauða en lífi og ældi þessi líka lifandis ósköp á stéttina hjá henni og í ganginn. Það var ekki frásögu færandi nema fyrir það að Mr. Herjólfsson varð skyndilega mjög þreyttur og lagðist niður í æluna og drapst þar. Meira hef ég ekki heyrt af honum en ég giska á að hann liggi enn í ælunni sinni. Ég kveð að sinni.
Yfir og út.

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 18:35 - 01. May, 2002 | Höfundur:

Ég fékk mynd senda í pósti núna rétt í þessu sem er ekki frásögu færandi nema hvað ég hef sjaldan séð mynd sem er eins sönn og þessi, hahahaha…. varð bara að deila þessu með ykkur.
Takk Hófí

menvswomen.jpg

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 17:32 - 01. May, 2002 | Höfundur:

Jæja, þá er frídagur verkamanna genginn í garð ásamt besta mánuði ársins… Maí! :D Allavega, fyrst það var nú frí hjá manni í dag ákvað maður að skella einsog nokkrum bjórum framan í sig í gær þannig að við fórum heim til Önnu vinkonu og djúsuðum eitthvað smá þar. Alveg merkilegt hvað þessir drykkjuleikir ætla að lifa… þetta er alveg skelfilega leiðinlegt… sitja við borð og draga einhver spil blablabla. Þá styð ég nú frekar að sitja bara öll í hring og þegja. En nóg um það, þetta var bara eitt af þessum *hefekkertbetraaðgera* fylleríum. En já, ég tók mig til og grillaði rétt í þessu. Þessar líka fínu rauðvínslegnu svínasteikur… svo náttúrulega kartöflugratín og piparsósu með. NAMM! Ég grillaði 6 steikur og það urðu 3 afgangs þar sem helmingurinn af fólkinu sem átti að vera í mat mætti ekki, þannig að ef þið eruð svöng þarna hinum megin við skjáinn þá eru 3 girnilegar svínasteikur ásamt einum bakka af kartöflugratíni á boðstólnum á Brimhólabraut 1, bara fyrir þig. Úrslitin úr þessari skoðanakönnum sem ég setti hérna upp urðu sú að flestum hefur aldrei verið meira saman á ævinni hvort þetta samræmda stærðfræðipróf verði kært eður ei. En jæja, best að fara að gera eitthvað af viti.
Veriði sæl.

Flokkað undir: Almennt  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment