Eldri færslur fyrir » April, 2002 «

færsla skrifuð kl. 23:33 - 29. April, 2002 | Höfundur: einir

Þá er komið mánudagskvöld og ég hafði ekkert betra að gera en að skella inn einu stk. spjallvegg hérna þar sem ég sá að menn voru farnir að nota gestabókina sem eins konar spjallvegg :P Vonandi að mannskapurinn sjái sér fært að nota þennan spjallvegg þar sem gestabókin er meira ætluð fyrir… ömm það sem nafnið felur í sér. Undirskriftir frá gestum sem koma á þessa síðu :D En allavega, spjallveggurinn er kominn hérna til hægri og hvet ég ykkur til að skrá ykkur á hann. En nóg um það.
Nú hefur ekki verið talað um annað í allan dag en þetta ‘rosalega’ samræmda stærðfræðipróf sem nemendur 10. bekkjar fóru í í morgun og allir rosalega óánægðir með hversu þungt prófið var. Ég fór á námsmat.is og leit á prófið og ég verð að segja einsog er að þetta er nokkuð strembið próf. Ég hef heyrt að það séu farnir af stað undirskriftalistar og læti og að menn ætli að kæra mann og annan… Well þetta er eitthvað sem ég ætla ekki að skipta mér af og veit hreinlega ekki af hverju ég er að skrifa um… ætli það sé af því að ég ‘þekki’ eina sem fór í þetta próf í morgun ;) En allavega… ég er orðinn þreyttur maður og ætla að tölta uppá Brimó 33 og leggja mig :P
Bið að heilsa og endilega kíkið á spjallvegginn :þ

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 01:32 - 28. April, 2002 | Höfundur: einir

Jæja… Laugardagskvöld og lítill Einir situr fyrir framan tölvuna. “Hvað er að ske?” hugsið þið örugglega… “EKKERT” segi ég, það er nákvæmlega ekki ra**gat að gera hérna á þessari Eyju. Ég búinn að kaupa mér vín og allt, búið að segja við mig að það verði djamm og læti… neinei, hætt við allt. Ég sit uppi með 2 kippur af bjór sem ég tími engan veginn að drekka núna og vera einsog hálfviti á kojufylleríi… Nei, frekar hangi ég hérna í tölvunni. Annað dæmi um að það sé ekki rass að gera hérna þá tók ég mig til og tók til (hmmm.. kemur heimskulega út :) í öllu herbeginu mínu, ryksugaði gólf, þreif allar hillur og tók til í skápum og skipti um á rúminu! Þetta hef ég aldrei gert, og hefði aldrei dottið í hug að mar ætti eftir að gera eitthvað svona lagað á laugardegi. Eins gott að það fari eitthvað að DRULLAST til að ske hérna á næstunni… jæja best að finna sér eitthvað að éta…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 20:27 - 26. April, 2002 | Höfundur: einir

Góða kvöldið… þá var mar að koma heim úr vinnu, ekki nóg með það heldur verður vinna líka á morgun þannig að maður fær ekki að fá sér í glas í kvöld einsog mar ætlaði. En það verður bara að hafa það. Þá verður mar bara rólegur í kvöld og tekur svo eitt ‘lítið’ djamm á morgun bara ;) Verður víst einhver fótboltaleikur innan vinahópsins, stelpur á móti strákum (HEHE :) það ætti að vera nokkuð athyglisverður leikur… en svo bara djamm um kvöldið :D
Jæja, ætli það sé ekki best að fara að koma sér í sturtu, Sæbjörg búin að bjóða manni í mat og læti :P Endilega að muna að skrifa í gestabókina enn og aftur :)
Bið að heilsa ykkur…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 20:25 - 24. April, 2002 | Höfundur: einir

Jæja… bara kominn miðvikudagur og síðasti vetrardagur þar að auki. Ég og Svenni vorum beðnir um að koma í fótbolta eftir vinnu í dag og við ákváðum að slá til og dajöööövull er langt síðan maður fór í fótbolta síðast… Allt þol sem mar hafði farið til fjandans og ég finn á mér að ég verð með æðislegar harðsperrur á morgun, eða þá að ég hef slitið eitthvað.. HEHE. En svo er bara frí í vinnu á morgun útaf Sumardeginum fyrsta þannig að maður verður að gera eitthvað af sér í kvöld, efast samt um að það verði drukkið… en mig langar til þess, það vantar ekki ;) Ætli mar bíði bara ekki eftir helginni og taki því rólega í kvöld, spóla með kærustunni eða eitthvað (það er ekki Svenni sko… HEHEHE ;) Allavega, bið að heilsa ykkur þarna… og sérstaklega þér Ólöf mín. Gangi þér vel í prófinu á föstudaginn :* Munið svo endilega að skrifa í gestabókina hérna til hægri ;)
Yfir og út.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 19:23 - 22. April, 2002 | Höfundur: einir

Þá er ný vinnuvika byrjuð og ekki var nú mikið að gera í morgun, bara löndun sem tók heila eilífð og svo chill eftir hádegi. Ég sé að það eru ýmsir vinir sem eru farnir að venja komur sínar á þessa síðu þannig að maður þarf að fara að vera duglegri við að uppfæra. En allavega, lítið að ske hjá mér þessa dagana nema það að það verður frí á sumardaginn fyrsta í vinnu (s.s. fimmtudag) og höfum við ákveðið að fá okkur í glas á miðvikudaginn, jafnvel að leigja sumarbústað og grilla þar og hafa það næs… En það verður allt að koma í ljós. Mar er ekkert á leiðinni að fá leið á þessum blessaða gítar og er ég nú farinn að sanka að mér lögum í bók sem ætla að gera til að hafa með í partýin og í dalinn þegar að því kemur ;) Ekki nema 101 dagar, 19 klst, 6 min og 3 sek, til Þjóðhátíðar 2002. Újé. En allavega, best að fara að drattast í þrek, bið að heilsa…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 20:19 - 20. April, 2002 | Höfundur: einir

Jæja, ég get ekki sagt að þetta hafi verið neitt rosalegt djamm í gær. Ég var kominn heim um 3 leitið einsog einhver kona, sauðdrukkinn og vissi ekki hvað ég hét. En það var gaman svona framan af kvöldi, þá var sungið og spilað á gítar… nokkuð góð stemmning. En svo þurfti mar að fara að drekka of mikið og láta lífið einsog vitleysingur. En svona er þetta bara, held mar taki því bara rólega í kvöld og rúnti eða eitthvað.

En svona á meðan ég man, þá rakst ég á síðu fyrir ykkur Pearl Jam aðdáendur sem vilja að MTV Unplugged tónleikarnir með þeim sem voru haldnir árið 1992 í New York (rétt einsog Nirvana Unplugged tónleikarnir árið 1994) verði gefnir út á VHS og DVD. Verið er að safna undirskriftum til að senda MTV Networkinu, síðan er hér og mæli ég eindregið með því að sem flestir skrifi undir, því þetta á að vera eitt af þeirra bestu showum.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 19:58 - 19. April, 2002 | Höfundur: einir

Jæja þá er bara kominn flöskudagur! Loksins… ekkert annað að gera en að fá sér í glas í kvöld og taka kannski bara gítarinn með, það hljómar helvíti vel. Verst að það er ekkert að ske hérna á þessari eyju frekar en vanalega… en það hefur nú ekki stoppað mann hingað til ;) En ég lít björtum augum á þetta kvöld og vonast bara til að finna eitthvað hressilegt partý, og ef einhver veit um eitthvað… þá má hann/hún endilega bjalla á mig á ircinu, þið vitið hver ég er… :þ En allavega, best að fara að fá sér að éta og drulla svo smá öli í kroppinn. Yfir og út.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 21:57 - 17. April, 2002 | Höfundur: einir

Jæja, ég henti inn gestabók… bara til að gera eitthvað. Ég veit að síðan er tómleg en svona er þetta bara. Ég ætla ekki að fara að setja inn eitthvað svona “Um mig” crap sem enginn nennir að lesa ;) En allavega, endilega skrifið í gestabókina! :þ Ég er farinn að sofa, vinna í fyrramálið… ZzZzZzZzZzzzz…

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð:  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 12:30 - 17. April, 2002 | Höfundur: einir

Þá er mar kominn heim og gott betur en það. Nennti ekki að skrifa neitt í gær né hinn þar sem ég var nokkuð þreyttur maður og hafði barasta annað að gera :P Allavega, þá er þetta bara búin að vera þessi venjulega vika hjá manni, vinna niðrí VSV frá 6 – 16 og svo þrek eftir það. Svo fer mar heim og deyr, vaknar næsta morgun… sama rútína. Ég og Svenni höfum ákveðið að fá okkur í glas um helgina, sama hvort eitthvað verður að ske eður ei. Eina sem þarf er bjór og gítar ;)
Svo er mar alltaf á leiðinni að fara að henda einhverju sniðugu inná þessa síðu en hefur bara engan tíma… en vonandi fer manni að gefast tími. En nú ætla ég að fara að drattast í vinnu. Laters.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: ,  | ekkert komment
færsla skrifuð kl. 13:28 - 14. April, 2002 | Höfundur: einir

Jæja, þá er þessari mögnuðu Reykjavíkurferð okkar að ljúka hérna og held ég að hafi bara tekist vel til. Þrátt fyrir að hafa ekki komið á bíl þá bjargaðist þetta allt saman einhvernveginn. Eitthvað fyllerí var á liðinu hérna í rvk (þ.e.a.s. þeim sem komu hingað úr skólaferðalaginu, og ber þá hæst að nefna hana Söru Björg sem fór á fyllerí í gærkvöldi og endaði á Selfossi ;o) Við hin fórum á 2 myndir í bíó, fyrst á Slackers sem er svona wannabe Roadtrip/She’s all that mynd sem ég mæli engan veginn með, en svo fórum við á Showtime með Eddie Murphy og Robert de Niro sem er algjör snilld. En einsog ég sagði, þá fer þessu nú öllu að ljúka. Ég sit hérna heima hjá Elenu systir og bíð eftir Gísla því við erum að fara á Champions að horfa á Arsenal – Middlesbro’ í bikarnum. Svo er það bara Herjólfurinn kl. 6 og svo heim að sooooofa. Over and out.

Flokkað undir: Uncategorized  | Stikkorð: , ,  | ekkert komment